Sigurður G. Guðjónsson, umboðsmaður framboðsins (og lögmaður Jóns Ólafssonar eins og HHG myndi taka fram) kynnti fyrir réttu ári að búið væri að gera upp framboðið, greiða allar skuldir o.s.frv. Í heildina kostaði framboð ÓRG um 42 milljónir í peningum, en sjálfsagt hefur það verið styrkt um eitthvað í fríðu. Á hinn bóginn kom ekkert fram um hvaðan tekjurnar komu, ekki einu sinni hlutföll milli styrkja fyrirtækja, einstaklinga, sölu happdrættismiða, sölu áritaðra mynda af forsetanum og þar...