Halló! Ég er 5 1/2.árs sheffer og vantar mjög gott heimili sem fyrst vegna ofnæmis á heimilinu. Ég er mjög stilltur og góður. Fer að hlaupa 2 km á morgnana og 2 km á kvöldin eða langa göngutúra.Ef þú hefur áhuga viltu þá svara þessu hér á huga.Er með fæðingavottorð,heilbrigðisvottorð og hef farið í allar sprautur og læknisbókin fylgir. Takk fyrir.
Mig langar að spurja ykkur hér á huga hvort þið vitið um eitthvað svæði þar sem maður getur látið hundana hlaupa lausir í Mosfellsbæ því ég kem þangað svo oft í bæinn, um hverja helgi en bý úti á landi? Það er eitt sem fer mikið í taugarnar á mér í Mosó að hestamenn eru á hestumum sínum í hvefunum svo þeir komist upp á hafravatn og þeir stíta á gangstéttir og á grasið og svo þarf ég að vera að leita af hundaskítnum hjá hundinum mínum innan um hrossaskítn. Hvað finnst ykkur um þetta er ekki...
Ég á einn séffer,má gefa hundum bein,t.d af læri eða hrygg. Hann vill ekki nagbein,harfisk,nagstöng.Eru svínseyrun góð,hef ekki prufað að gefa honum það.
Ég einn hund og einn kött. Hundurinn er 5 ára en kötturinn er 9 ára, við fengum okkur hundinn fyrir 2 mánuðum síðan og hann eltir hana alltaf en hún reynir að stínga hann og kvæsir á hann en stundum labba þau saman eins og hún gleymir að vera vond við hann, er þetta alveg eðlilegt að þau láti svona því við áttum einu sinni hund og þau voru mjög góðir vinir.Mun hún hætta þessu ef ekki hvað á ég þá að gera.
Hæ Ég hringdi um daginn í mann sem var að selja hunda og sagði að ég mætti fá hundinn en yrði að hringja aftur eftir 2 daga því ég sagði að ég byggi út á landi að ég gæti ekki sótt hann strax svo þegar ég hringdi aftur var hann búinn að láta hann fara. Stelpurnar mínar eru mjög sárar að fá hann ekki svo ef einhver veit um hund handa okkur látið mig vita því þær eru svo sárar.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..