Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Stig?!?! (0 álit)

í Tilveran fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Mér leikur forvitni á að vita hvaða tilgangi stigin þjóna…er það bara til að maður getur montað sig?…\“Ég er kominn með 2546 stig á Huga\”. Eða fær maður eitthvað fyrir að vera \“ofurhugi\”. Ég nefnilega skil ekki hvers vegna fólk er að taka þátt í könnunum og \“Hver ætlar\” sem það veit ekki einu sinni um hvað er verið að tala og núna eru flestir farnir að hafa möguleikann \“Stig\” Það skrifa líka margir eitthvað algert bull sem svar við greinum bara til að fá stig…t.d. hefur maður séð...

Almennt um áhugamálin á Huga (2 álit)

í Hugi fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Mér finnst furðulegt að \“Little Nicky\” og \“Star Wars\” séu sér áhugamál en flokkist ekki bara undir \“Kvikmyndir-DVD\”. Mér finnst að \“Hljóðfæri\” og \“Midi-Mp3\” ætti að vera sameinað undir áhugamáli sem héti \“Tónlist\”. Mér finnst að það mætti breyta áhugamálinu \“Jeppar\” í \“Bílar\” Ég er líka með nokkrar hugmyndir um ný áhugamál. Gæludýr Friends Trúarbrögð Matur-mætti líka vera Heilsa/Matur Heimspeki Bækur Ég held líka að það viti ekki nógu margir af þessum kork…hann er mjög lítið...

Gæludýr (1 álit)

í Hugi fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég var að spá hvort það væri hægt að koma með áhugamál sem heitir gæludýr. Þar gæti fólk talað um gæludýrin sín, fengið ráð hjá öðrum gæludýraeigendum um dýrin, sagt öllum frá því hvað menn eiga sæt og skemmtileg gæludýr, fengið stuðning þegar dýrið er veikt, talað um kosti og galla sem fylgja gæludýrum almennt, sent inn myndir af dýrunum sínum, kosið um það hvaða gæludýr sé best o.s.frv. Eru ekki allir sammála?<BR

Snjórinn er kominn! (1 álit)

í Jeppar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég gat ekki með neinu móti svarað könnuninni sem er í gangi núna samviskusamlega…því þar var enginn möguleiki…snjórinn er kominn. Hann er að minnsta kosti kominn hérna á Akureyri…bara að láta ykkur vita :)<BR

Kannanir á jólin (2 álit)

í Hátíðir fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ekkert smá frumlegar kannanir sem eru búnar að vera hérna á áhugamálinu jólin…þær eru 3 sem hafa verið og eru allar um það hvort við höfum lifandi tré eða gervitré…bara mismunandi útgáfur af spurningum… Furðulegt<BR

Hefuru farið í andaglas? (0 álit)

í Dulspeki fyrir 23 árum, 3 mánuðum

mks...hvar færðu þesar myndir (0 álit)

í Dulspeki fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég var bara að spá hvar mks fengi allar þessar flottu myndir…<BR

Hvað ferðu oft í kirkju? (0 álit)

í Dulspeki fyrir 23 árum, 4 mánuðum

Húsverkin (10 álit)

í Rómantík fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Þetta er ekkert sérlega rómantíkst málefni..en ég ætla samt að setja þetta hérna. Ég og kærastinn minn getum aldrei skipt húsverkunum á milli okkar þannig að okkur finnist það sanngjarnt…miðað við hvernig við erum að vinna og allt það. Og það sem er kannski leiðinlegra er að mér finnst oft það sem hann gerir miklu verr gert en ég vildi hafa það, en það er auðvitað bara smámunasemi í mér. Ótrúlegt hvað maður getur eytt miklu púðri í eitthvað svona ómerkilegt. Og svo er hann alltaf að tala um...

Giftingar (10 álit)

í Rómantík fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég hef oft verið að spá í hvers vegna svona rosalega margir vilja láta gifta sig í kirkju og halda síðan einhverja hjúts veislu. Ég hef líka oft spáð í það hvort að allt þetta fólk trúi virkilega á Guð og ég veit meira að segja um hjón sem giftu sig í sumar sem trúa ekki á Guð en giftu sig samt í kirkju af því að þeim fannst aðrar leiðir svo púkó. Aldrei myndi ég vilja játa ást mína á kærastanum mínum frammi fyrir einhverju sem ég held að sé ekki til. Svo þessar stóru, nánast ópersónulegu...

Ókurteis börn (15 álit)

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég þoli ekki ókurteis börn. Ég var áðan að úti að ganga og var með nammipoka í höndunum, svo mæti ég tveimur u.þ.b. 8-10 ára strákum og annar þeirra spyr mig frekjulega: “Ætlaru ekki að gefa mér?” Ég svara að sjálfsögðu neitandi og þar að auki var ég að borða hnetur sem hefðu líklega ekki vakið mikla lukku. Og þá spyr krakkinn: “Af hverju ekki?” Þetta er eitthvað sem ég get ekki þolað, svona frekja. Ég held að uppalendur ættu að fara að vanda sig aðeins betur og kenna börnunum hvað sé...

Fóstureyðingar (8 álit)

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Jæja, gott fólk! Hvað finnst ykkur um það þegar stelpur eða konur fara í fóstureyðingu vegna þess að þær vilja ekki að börn “eyðileggi” líf þeirra? Sumir virðast halda það að það sé ekki hægt að ná langt í námi eða starfi og eiga börn í leiðinni. Mér finnst þetta rosaleg eigingirni. Finnst ykkur að ef faðirinn er algjörlega á móti því að móðirin fari í fóstureyðingu að það ætti að banna henni það? Ég vil taka það fram að ég er alls ekki á móti fóstureyðingum ef eðlilegar ástæður eru fyrir...

Góð ráð um mataræði ungbarna? (5 álit)

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Mig vantar upplýsingar um allt milli himins og jarðar varðandi mataræði barna frá því byrja að borða fasta fæðu til ca. 3 ára aldurs. Vitið þið um einhverja heimasíðu sem hefur upplýsingar um þetta efni eða getið þið leiðbeint mér eitthvað? Takk Xenia
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok