Fimmtudaginn, 22. febrúar, mun sænska gæðarokkhljómsveitin Pain of Salvation halda tónleika hér á landi, ásamt hinni íslensku Dead Sea Apple. Fyrir þá sem ekki þekkja til þessarar vönduðu hljómsveitar, er hægt að nefna að þeir spila blöndu af nokkrum tónlistarstefnum, allt frá þungum metal til jazz og allt þar á milli. Hljómsveitin er á leiðinni til Bandaríkjanna að spila þar á tónlistarhátíðinni ProgPower (http://www.progpower.com) og eru þeir hvorki meira né minna en aðalnúmer hátíðarinnar...