Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Spiff
Spiff Notandi frá fornöld Karlmaður
28 stig

Re: Þung spor Árna J !!

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Sykur, ertu skemmdur í hausnum? Er lífið bara svart/hvítt hjá þér? Er ómögulegt að hafa samúð eða sýna fólki stuðning án þess að vera sammála því? Árni á augljóslega erfitt, og hann á samúð mína (sem og Sykur sem ég óska skjótum þroska), en það sem að Árni gerði var rangt, hann á skilið sína refsingu, en það er óþarfi að fara út í mannorðs-morð og senda hann í útlegð úr okkar samfélagi.

Re: Besta vopnið í bensínstríðinu?

í Bílar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Málið er að við verðum að mótmæla einhvernvegin. Við getum ekki setið með hendur í skauti og sagt: “Ég hef engin áhrif”. Við getum verslað við Orkuna, ÓB og þessar ódýrari stöðvar sem byggja innkomu sína einungis á bensíni (OK, þetta eru dótturfyrirtæki, en samt sér rekstrareiningar). Við vitum að álagning olíufyrirtækjanna kemur mest megnis vegna vörusölu og þjónustu; þess vegna eigum við að sniðganga þann lið hjá fyrirtækjunum. Við getum ekki leyft okkur að sitja á rassgatinu og gert ekki neitt.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok