Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

RRehf
RRehf Notandi síðan fyrir 20 árum, 3 mánuðum 74 stig

Re: Metallica - miðasala - forsala

í Rokk fyrir 20 árum, 1 mánuði
Daginn. Ég reikna með því að fanclub meðlimir geti keypt 2 miða. Prenta út staðfestinguna og koma með. Kveðja Halldó

Re: Metallica - miðasala - forsala

í Rokk fyrir 20 árum, 1 mánuði
Upplýsingar um hvar miðasalan verður verða birtar í blöðunum í vikunni. Miðaverð: A svæði (fyrir framan sviðið - um 5000 miðar) kr. 7,500,- B svæði kr. 6,500,- Það verður líka miðasala á netinu. Kveðja Halldó

Re: Metallica - miðasala - forsala

í Rokk fyrir 20 árum, 1 mánuði
Daginn. 1. Það verða um 5000 í A hólfi 2. Þegar forsölunni er lokið geta allir sem vilja keypt miða í A hólf svo lengi sem miðar eru til. 3. Þú kaupir miðann út á metclub.com á miðasölu - ekki á netinu. 4. Það er nóg að vera með forráðamanni og það verður ekki 18 ára aldurstakmark. 5. Standard er nóg til að kaupa miða í forsölunni. Athugaðu að nokkrir af þeim sem eru í www.metclub.com fá VIP passa og komast á backstage svæðið líka. Kveðja Halldó

Re: Metallica - miðasala - forsala

í Rokk fyrir 20 árum, 1 mánuði
Ég reikna með því að þeir sem séu í Metallica klúbbnum fái að kaupa miða fyrir makann líka. Þetta verður auglýst síðar í vikunni. Kveðja Halldó

Re: Metallica - miðasala - forsala

í Rokk fyrir 20 árum, 1 mánuði
Þú bara prentar út staðfestinguna og sýnir hana - ekki málið. Kveðja Halldó

Re: Metallica - miðasala - forsala

í Rokk fyrir 20 árum, 1 mánuði
Miðaverðið er: A svæði (fyrir framan sviðið) um 5,000 miðar og kosta kr. 7,500,- B svæði ca 20-25 metra frá sviðinu kr. 6,500,- Ekki komið svar erlendis frá hvort að við getum leigt stúku. Það verða væntanlega bekkir aftast. Kveðja Halldó

Re: Metallica - miðasala - forsala

í Rokk fyrir 20 árum, 1 mánuði
Rétt. Við erum bæði með Placebo og Metallica. Bendi enn og aftur á að meðlimir í www.metclub.com hafa líka forkaupsrétt. Kveðja Halldó

Re: Metallica - miðasala - forsala

í Rokk fyrir 20 árum, 1 mánuði
Hvar miðasalan verður verður auglýst seinna í vikunni. Hún verður líka á netinu. Kveðja Halldó

Re: Metallica - miðasala - forsala

í Rokk fyrir 20 árum, 1 mánuði
Forsalan fer í gang næstu helgi og verðu auglýst í blöðunum í vikunni. Það eru reglur um að á svona stórum viðburðum verður að vera grindverk um 20-25 metra frá sviðinu. Þetta er gert til þess að það þrýsti ekki allur salurinn á þá sem eru fremst. Þetta er ekki eitthvað sem við erum að finna upp heldur eru þetta reglur. Kveðja Halldó

Re: Metallica - miðasala - forsala

í Rokk fyrir 20 árum, 1 mánuði
Fremsta hólfið tekur um 5000 manns og engin hætta á öðrum en það verði blanda af fínu og skemmtilegu fólki. Hörðustu Metallica aðdáendurnir eru líka þeir sem eru í Metallica fan club (www.metclub.com) og þeir geta keypt miða í forsölu. Kveðja Halldó

Re: Metallica - miðasala - forsala

í Rokk fyrir 20 árum, 1 mánuði
Hólf A er svæðið fyrir framan sviðið og það tekur um 5000 manns. Svæði B er um 20-25 metrum aftar og tekur meira en svæði A. Ég vek athygli á því að meðlimir í Metallica Fan Club (www.metclub.com) hafa rétt á að kaupa miða í forsölu Kveðja Halldó

Re: Metallica - miðasala - forsala

í Rokk fyrir 20 árum, 1 mánuði
Svæði A er svæðið beint fyrir framan sviðið og þar verða ca 5000 miðar sem er það sem fer í forsölu. Það er ekki uppselt ennþá á Placebo þannig að það er alveg óvíst hvort að það fara allir A miðarnir strax. Kveðja Halldó

Re: Metallica - miðasala - forsala

í Rokk fyrir 20 árum, 1 mánuði
Þetta er þannig að þeir sem eru í www.metclub.com og hinir sem eiga miða á Placebo fá að kaupa í forsölu. Það fer tæplega 1/3 af heildarmiðafjölda í forsöluna. Þú getur gengið í www.metclub.com, farið og keypt þér miða á Placebo eða hinkrað eftir því að miðarnir fari í almenna sölu.

Re: Metallica - miðasala - forsala

í Rokk fyrir 20 árum, 1 mánuði
Ég held að Standard sé það sem til þarf

Re: Metallica - miðasala - forsala

í Rokk fyrir 20 árum, 1 mánuði
Viku síða

Re: Metallica - miðasala - forsala

í Rokk fyrir 20 árum, 1 mánuði
1 fyrir 1

Re: Metallica - miðasala - forsala

í Rokk fyrir 20 árum, 1 mánuði
Jú, þú getur gengið í klúbbinn og keypt miða í forsölunni

Re: Metallica - miðasala - forsala

í Rokk fyrir 20 árum, 1 mánuði
Þetta er allt í góðu. Það þarf enginn að kaupa sér miða á Placebo frekar en hann vill. Innan við 1/3 af miðunum á Metallica fara í forsölu. Þeir sem eiga miða á Placebo og þeir sem eru í Metallica Fan Club geta nýtt sér að kaupa sér miða í forsölunni. Hinir kaupa sér miða þegar miðarnir fara í almenna sölu. Kveðja RR ehf. Halldó

Re: Metallica - miðasala - forsala

í Rokk fyrir 20 árum, 1 mánuði
Þetta er ekki alveg rétt hjá þér. Það fer innan við 1/3 af miðunum í forsölu. Kveðja Halldó

Re: Metallica - miðasala - forsala

í Rokk fyrir 20 árum, 1 mánuði
Við bjóðum þeim sem hafa keypt miða á Placebo að kaupa miða í forsölunni einfaldlega vegna þess að þeir eru viðskiptavinir okkar. Versla meira og fá meira! Þeir sem eru í Metallica fan Club (www.metclub.com) hafa jafnframt forkaupsrétt á miðum. Kveðja RR ehf. Halldó

Re: Metallica - miðasala - forsala

í Rokk fyrir 20 árum, 1 mánuði
Upplýsingar um styrktaraðila að Metallica tónleikunum verða birtar um miðja vikuna. Kveðja Halldó

Re: Metallica - miðasala - forsala

í Rokk fyrir 20 árum, 1 mánuði
Þeir sem eru í Metallica fan Club fá líka að kaupa miða í forsölunni. Það verður innan við 1/3 af miðunum seldur í forsölunni. Kveðja RR ehf. Halldó

Re: RR ehf tilkynnir - Metallica á Íslandi

í Rokk fyrir 20 árum, 1 mánuði
RR ehf er fyrirtæki sem flytur m.a. inn hljómsveitir og ef þið viljið vita hvað RR stendur fyrir þá er það “Rock'n Roll” Kveðja RR ehf.

Re: RR ehf tilkynnir - Metallica á Íslandi

í Rokk fyrir 20 árum, 1 mánuði
Frekari upplýsingar um fyrirkomulag á miðasölunni og hljómleikana verða birtar í næstu viku. Kveðja RR ehf. Halldó

Re: Metallica þann 4. júlí nk??? (fyrsti apríl liðinn)

í Metall fyrir 20 árum, 1 mánuði
Daginn. Við hjá RR ehf sem stöndum fyrir komu Metallica hingað höfum gengið frá samningum og þetta er pottþétt mál og frágengið að fullu. Þetta er líka staðfest á heimasíðu Metallica. Kveðja RR ehf. Halldór Kvaran & Ragnheiður Hanson
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok