Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: "Tæknilega séð!"

í Heimspeki fyrir 19 árum, 1 mánuði
Já shit. Lifandi vísindi alveg búin að skemma heilu kynslóðirnar.

Re: fatta ekki alveg

í Vélbúnaður fyrir 19 árum, 1 mánuði
Updeita drævera?

Re: Activate my mind

í Grafísk hönnun fyrir 19 árum, 1 mánuði
Þetta er alveg efni á bol :O

Re: vændi og áfengi!!!

í Deiglan fyrir 19 árum, 1 mánuði
Þú hefur greinilega ekki lesið allt svarið hans. Eins og hann byrjaði á því að spyrja, hefurðu aldrei heyrt talað um sönnunarbyrði?

Re: vændi og áfengi!!!

í Deiglan fyrir 19 árum, 1 mánuði
Hvaða heimildir hefurðu fyrir því að álagningin sé 800%? (síðan er það átta sinnum meira, en ekki átta hundruð sinnum meira, hehe)

Re: Ipod nano (grænn) 4 gb til sölu!!

í Tilveran fyrir 19 árum, 1 mánuði
Af hverju auglýsirðu að þú viljir fá 15-18 þús? Helduru að einhver fari að bjóða þér 18 ef þú ert búin að minnast á 15?

Re: 1 ár

í Rómantík fyrir 19 árum, 1 mánuði
http://www.bubbi.is/plotur/plotur_nanar.php?id=35 Breyttir tímar.

Re: 1 ár

í Rómantík fyrir 19 árum, 1 mánuði
Hmm.. held það hafi heitið “Jim Morrison”.

Re: Hækkun á verði á tóbaki ?

í Tilveran fyrir 19 árum, 1 mánuði
Það er náttúrulega til full mikils ætlast af fólki að þurfa að sjá um skattaframtalið sitt sjálft OG þurfa að velja sjálft hvort það ætli að reykja og/eða drekka.

Re: Tilraun

í Ljósmyndun fyrir 19 árum, 1 mánuði
“noise” er það sem kemur þegar maður reynir að magna eitthvað of mikið. Það er eiginlega bara bjögun og truflanir vegna ófullkomleika græjanna sem maður er að nota. Getur t.d. heyrt noise ef þú stillir einhverja hátalara mjög hátt án þess að vera að spila eitthvað með þeim. Svona “suð” einhvernvegin. Hátt ISO veldur miklu noise, enda þarf maður ekki eins mikla birtu. En já, noise getur alveg verið viðeigandi og það kemur alveg hreint ágætlega út á þessari mynd :-)

Re: Aikido sökkar

í Bardagaíþróttir fyrir 19 árum, 1 mánuði
Mikið elska ég svona pólítíska rétthugsun. Eina leiðin til að eitthvað sé rétt.

Re: Femínískar jafnaðarkonur á villigötum

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 1 mánuði
Mér finnst þetta ansi gott hjá henni. Jafnrétti er fyrst og fremst hugarfarsbreyting. Þess vegna ættu femínískar jafnaðarkonur að hefja málefnalega jafnréttisbaráttu sína á því að losa sig við þá minnimáttarkennd sem einkennir málflutning þeirra.Eins og staðan er í dag þá viðurkenna femínískar jafnaðarkonur fyrir sjálfum sér að það sé veikleiki að vera kona með því að halda því fram að samfélagið eigi að koma öðruvísi fram við þær en karla.Væri nú til í að vitna í meira, þetta er alltsaman...

Re: ..?:D

í Blogg fyrir 19 árum, 1 mánuði
Núna þætti mér gaman að vita hvurn ***** þú ert að meina.

Re: Gaman í fjallinu

í Ljósmyndun fyrir 19 árum, 1 mánuði
Flott mynd. Ég held að það sé bara ég, en mér finnst svo leiðinlegt að sjá snjó þekja svona stórt svæði samfellt á mynd. Allavega svona. En þetta er skemmtileg mynd.

Re: Vinir af sitthvoru kyninu

í Tilveran fyrir 19 árum, 1 mánuði
Einusinni þegar smá vinahópur sem ég var í hékk heima hjá mér, þá kallaði litla systir mín á eftir mér “Áttu ÞRJÁR kærustur?!??!”

Re: 1 ár

í Rómantík fyrir 19 árum, 1 mánuði
Jæja, þetta er nú texti úr lagi með hljómsveitinni Ego sem Bubbi var í. (þetta með dagana og sólina þe.)

Re: 1 ár

í Rómantík fyrir 19 árum, 1 mánuði
Nei einmitt. Ef stelpan síðan spyr er best að vera bara búinn að koma henni inn í einhvern svona random húmor og slá þessu bara upp í grín. Hún:“Manstu ekki hvaða dag við byrjuðum saman?” Ég:“Dagarnir eru föl andlit sem hlaupa á eftir sólinni, því hún er spegill drauma þeirra!!!!” … og síðan fel ég mig undir rúmi. Þannig kemst maður hjá svona vandræðalegum mómentum.

Re: "Tæknilega séð!"

í Heimspeki fyrir 19 árum, 1 mánuði
Nákvæmlega. En ég held að í fæstum tilvikum (þmt. því sem þú varst að svara hérna) sé einhver raunveruleg tæknileg þekking á bakvið fullyrðinguna.

Re: Dagurinn í Dag....

í Rómantík fyrir 19 árum, 1 mánuði
Aaaaaaaaaaaaaah hvað mig langar í svona. Þið eruð ótrúlega heppin Sleepless mín, og ég vona að þið eigið eftir að verða hamingjusöm það sem þig eigið ólifað. :P Ótrúlega sæt grein (eða semsagt, það sem hún er um).

Re: saaaakn ;*

í Rómantík fyrir 19 árum, 1 mánuði
Er ég sá eini sem tekur eftir strikinu sem er yfir hakakrossinn? (bannmerki semsagt)

Re: Sjálfsmorð.

í Tungumál fyrir 19 árum, 1 mánuði
Svona eru þessar málvenjur skemmtilegar. Það er nú ekki eins og hugarar haldi málvenjur heilagar, eða mér hefur allavega sýnst ekki.

Re: hvað gera pickupar??

í Hljóðfæri fyrir 19 árum, 1 mánuði
Nei, það nemur ekki titringin í loftinu. Prófaðu t.d. að setja plast eða kopar strengi í gítarinn þinn. Heyrir ekki baun. Kjarni málsins er að það þarf járn sem hreyfist inní segulsviði spólu. Ætli EMG pickupparnir séu ekki bara betur varðir? Annars er líklegast að röddin þín hafi látið strengina titra. Það væri nú reyndar töff að prófa þetta þegar maður væri búinn að taka strengina úr.

Re: Tilraun

í Ljósmyndun fyrir 19 árum, 1 mánuði
Hmm.. það er eitthvað töff við þetta, en eins og hann sagði, ógeðslega mikið noise.

Re: hvað gera pickupar??

í Hljóðfæri fyrir 19 árum, 1 mánuði
Haha. Kannski ef raddböndin hans eru úr járni og hann nær að leggja pickupana upp að hálsinum. Málið er að það þarf að hreyfa einhvern segulmagnanlegan málm inní segulsviði rafseguls. Eða eitthvað. Man þetta ekki alveg. Annars getur alveg heyrst eitthvað í gegnum pickupana sko, en það er þá ef einhverjir strengir ná að hreyfast vegna óhljóðanna úr kokinu.

Re: Kóraninn

í Deiglan fyrir 19 árum, 1 mánuði
líklega búið að heilaþvo barnið á þessu bulli.Eitthvað öðruvísi en með kristni? Alveg sama bullið.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok