Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Nekron
Nekron Notandi síðan fyrir 20 árum 51 ára karlmaður
392 stig

Re: Eternal Majesty

í Metall fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Ahem… Takk fyrir að láta vita…:-) Konan mín var víst eitthvað að leika sér í vefsíðugerð og allt fór í rugl. Búið að redda síðunni og ætti þetta að virka núna… Kv, D/N

Re: Wacken Open Air 2007 - Hópferð til Mekka metalsins!

í Metall fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Hmmm… Þú þekkir mig líklegast ekki að stöddu, en vonandi breytist það við gott tækifæri, td. Wacken…:-) Kv, D/N

Re: Eternal Majesty

í Metall fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Skoðaðu mig… www.nekron-art.com …Er svona nokkuð á góðri leið, þó ég þykist varla svalari en aðrir menn!-) Kv, D/N

Re: Vinur okkar allra Afro Ninja

í Bardagaíþróttir fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Sko… Ég var nýkominn af sólarströnd og átti eftir að fara í klippingu… …En ég er búinn að læra alveg helling síðan!!! (stóðst ekki mátið…:-D Kv, D/N

Re: Wacken Open Air 2007 - Hópferð til Mekka metalsins!

í Metall fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Iss… Svona er kvenfólkið (mín líka…:-). Má ekkert gera eða segja og þá allt komið á (í) annan endann. …En það verður þó gaman að sjá þig í febrúar og má konan alveg vera með ef hún er eitthvað hrædd um þig!-) Kv, D/N

Re: Wacken Open Air 2007 - Hópferð til Mekka metalsins!

í Metall fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Það ætla ég rétt að vona… Enda væri það nú ætlunin að sjá sem mest af þér við hvert tækifæri…:-) Kv, D/N

Re: Cro-cop þegar hann var yngri

í Bardagaíþróttir fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Svona ‘spirit’ kann maður að meta… Ekkert sem stoppar slíka menn af og mætti vel taka þá til fyrirmyndar… Kv, D/N

Re: Wacken Open Air 2007 - Hópferð til Mekka metalsins!

í Metall fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Blessaður 666etc…, Takk fyrir það… Ég hef það þá á bak við eyrað og huga á samband við þennan mann þegar að kemur. Ekki verra að við ‘óldskúl’ málmhausarnir séum viðstaddir; þá sérstaklega er öllu er á botninn hvolft og hinir ódauðlegu séð-heyrðir í - hvað - fjórða eða fimmta skipti…:-) Við sjáumst vonandi heilir í Germaníu… Kv, D/N

Re: Wacken Open Air 2007 - Hópferð til Mekka metalsins!

í Metall fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Sælir, Ég verð vitanlega á Wacken 2007, enda ‘Immortal’ að spila, þó svo að ég ferðist líklegast beint héðan frá Hollandi. Spurningin er; hvort - og hvernig - sé hægt að nálgast samlanda sína innan um allan skarann… Verður flaggað í nafni lands og menningar eða hvað…??? Kv, D/N

Re: Bruce Lee

í Bardagaíþróttir fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Jamm, hann stóð fyrir sínu og enginn vafi á; að enn í dag njótum við góðs af… Kv, D/N

Re: Slæmar fréttir af Árna Ísaks

í Bardagaíþróttir fyrir 18 árum, 11 mánuðum
…Eða Ninja!-) Kv, D/N

Re: 'Ninjitsu' er besta bardagalistin!!!

í Bardagaíþróttir fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Einmitt og rétt það, enda er þessi vanvita vitleysingur hvorki ninja né hvað annað nema skegglaus jólasveinn (jæja, næstum skegglaus…:-) …En þetta gerði út um spilið fyrir mér (og mörgum öðrum í Bujinkan) með þessa bullþætti… Og gæti ég bætt við að; ‘ninjitsu’ sérfræðingurinn svokallaði hefur ‘aldrei’ stigið fæti inní almennilegt Ninpo/Budo Dojo samkvæmt því sem ég best veit. Líklegast einn af þessum ‘Ashida Kim/Frank Dux’ vesalingum sem duttu í lukkupottin og fengu svartabeltið - ásamt...

Re: 'Ninjitsu' er besta bardagalistin!!!

í Bardagaíþróttir fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Blessaður AJM, Þar stend ég með þér og get talað frá svipuðu sjónarhorni, þ.e.a.s. alveg nógu erfitt að standa í þessu jafnt og stöðugt; að NG komi svo með þvílíka og aðra eins fásinnu til að umturna því sem reynt er að rétta við… Nú horfði ég ‘aftur’ á þáttinn (via VHS) í gærkveldi og sá loksins seinni hlutann…:-( …En ég nenni barasta - hálfpartinn - ekki að ergja mig meira yfir þessu, en vildi þó benda á eftirfarandi svo að lesendur megi forðast þá gildru að gleypa við því ‘rugli og ósóma’...

Re: 'Ninjitsu' er besta bardagalistin!!!

í Bardagaíþróttir fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Blessaður Tunkur, Mér fannst - svona persónulega og fyrir sakir forvitni - alveg ágætt að sjá þessar niðurstöður sem þeir komu með, en eins og þú bendir ‘nokkurnveginn’ á sjálfur; þá hefur þetta ósköp lítið að segja og einungis til þess að heilla nýgræðinga, enda bíómyndastíllinn á þessu alveg afgerandi… Kv, D/N

Re: 'Ninjitsu' er besta bardagalistin!!!

í Bardagaíþróttir fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Sæll SasaN, Ég sá þetta nú hér í Hollandinu, en ég veit ekki betur en að þetta hafi verið einungis ‘einn’ heimildarþáttur, þ.e.a.s. tveir tímar, klukkutími á hvorn lið. Fyrri hluti virtist einblína á högg, spörk og hvað annað er telst til ‘óvopnaðra aðferða’ innan bardagalista/íþrótta, en sá síðari fjallaði um ‘klassísk’ vopn og (ha ha ha…:-), ahem… ‘notagildi’ þeirra… Kv, D/N

Re: Opna MMA æfingin í Mjölni!!!!!

í Bardagaíþróttir fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Heh heh… Gríp það á lofti og mun notast við þetta, enda alltaf að ‘blaðra’ um hversu fólk skyldi nota tær til að þreifa fyrir sér… Takk, takk!!! Kv, D/N

Re: Opna MMA æfingin í Mjölni!!!!!

í Bardagaíþróttir fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Því ekki það… Þá gætum við allir verið í fýlu saman:-D Kv, D/N

Re: Opna MMA æfingin í Mjölni!!!!!

í Bardagaíþróttir fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Sæll Jón Viðar, Þetta þykir mér leitt að heyra og vonandi að þetta eigi eftir að ganga betur næst… Við ættum kannski að leggja saman í púkk ('Mjölnir vs Grímnir') einn góðan veðurdag þegar öllum líður betur, allir hafa tíma… og allir geta mætt:-) …En það getur ekki verið verri lykt af þér en mér. Ég hamast þetta 7 daga vikunnar og hef ekki sturtað mig síðan á þriðjudag, enda konan að verða alveg brjáluð!-) Kv, D/N

Re: 'Ninjitsu' er besta bardagalistin!!!

í Bardagaíþróttir fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Sæll Deathblow, Það var gaman að sjá eitthvað af þessum tilburðum; þó svo að ég hafi nú fengið meira út úr öðrum þætti (var sýndur á sama kvöldi) sem fjallaði um þjálfun ástralsks bardagamanns í Tælandi og lýsti svo óförum hans í K-1 keppninni 2005. Skemmtilegri - og raunhæfari - hnéspörkin þar að mér sýndist… …En það var þó þess virði að hljóta einhverjar - þó jafnvel afvegaleiðandi - upplýsingar um þetta alltsaman, svona ‘innan frá’ ef svo má að orðum komast. …En hvað fannst þér þá um...

Re: 'Ninjitsu' er besta bardagalistin!!!

í Bardagaíþróttir fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Sæll Hwarang, Alveg vísindalega vitlaust, það er svona mitt álit þó svo það megi vitanlega hafa skemmtun af (enda glápti maður nú á þetta…). Ég skil bara ekki hvað þeir voru að draga fram þennan Power Ranger gauk (með rauða kvenmannsbeltið sitt. Jæja, rauðleita…) og kalla þetta ninju. Vitleysiskatan sem hann hamaðist við - sér til framfæris - var ekki bara óhemju léleg, heldur upp skálduð (eins og flest allt það sem hann gerði) og einungis til sjálfsmorðsæfinga… Skrefin og jafnvægið voru þó...

Re: 'Ninjitsu' er besta bardagalistin!!!

í Bardagaíþróttir fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Sæll aftur Daníel, ''Dolls… Don´t hit back!!!'' Ég segi ekki meir og get ekki annað en tekið - þó með þungu hjarta - undir það sem þú segir… …En af hverju geta þessir menn ekki drullast til að nálgast þetta - annars skemmtilega - málefni frá raunsæju sjónarhorni!!! (…með þessum orðum vaggaði listamaðurinn á braut, kveikti sér í grasstrái og hvarf raulandi inní sólsetrið… ‘'Æma púr lónsom nindja end a long vei from hóm…’') Kv, D/N

Re: 'Ninjitsu' er besta bardagalistin!!!

í Bardagaíþróttir fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Sæll Freaky, Jú það passar, enda virðist svo vera helsta álitið (viðbrögðin) innan heims bardagalist/íþrótta… Fólk virðist annaðhvort skella uppúr, eða sökkva saman (sigh) og hugsa NG þegjandi þörfina… Við félagarnir - hér í Niðurlöndum - reyndum nú að skoða þetta frá hlutlausu sjónarhorni (eins og oftast), en maður gat bara ekki - hvernig sem á var snúið - tekið þessu með alvöru. Kv, D/N

Re: íslensk bardagalista netverslun

í Bardagaíþróttir fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Blessaður og sæll, Nunchaku teljast til ‘vopna’ - per say - frekar en æfingatóla (viðardálka, Bokken, viðarspjót etc…), enda eru þær bannaðar hér í Hollandi; sem og Shuriken, kasthnífar og fleira sem telst til ‘skyndivopna’ (ef það mætti notast við það hugtak…) …En Nunchaku er ‘ekki’ notað í Ninjutsu (mæli þá frekar með Kusarigama), þó svo að við getum svosem gripið í þær eins og flest hvað annað, en þær eru frekast taldar gagnslausar og bestar til síns upphaflega brúks sem...

Re: íslensk bardagalista netverslun

í Bardagaíþróttir fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Hmmm… Sá nú ekki mikið af Bokken eða öðrum ‘nauðsynlegum’ æfingatólum hjá þeim… …En mér skilst nú að Ísland sé eina landið á jarðkringlunni þar sem þessir hlutir eru bannaðir, enda tryllist fólk úr hlátri þegar ég minnist á þetta. Kv, D/N

Re: Slæmar fréttir af Árna Ísaks

í Bardagaíþróttir fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Hmmmm… Slæmt mál þar og vonandi nær hann sér rólega, en sem fyrst og án þess að líða einhverja varanlega áverka. …En veit einhver - nokkuð nákvæmlega - hvað olli þessu óhappi…??? Kv, D/N
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok