Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

MonteCristo
MonteCristo Notandi síðan fyrir 20 árum, 10 mánuðum Karlmaður
108 stig
Don't argue with idiots. They drag you down to their level and beat you by experience.

[Keppni] Margt leynist í myrkrinu (4 álit)

í Grafísk hönnun fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Jæja, hér er mitt framlag til keppninnar. Ekki mikið um þetta að segja enda er ég hálfgerður byrjandi. Fékk þessa hugmynd og fiktaði svolítið í Photoshop með hjálp frá hinum og þessum “tutorial-um”. Samansett af eldkúlu, höndinni á mér (sem á að líta út fyrir að vera úr steini) og Esjunni í baksýn! Er ekki alveg nógu sáttur við höndina en þetta er sem sagt hægri höndin ef það skildi ekki sjást nógu vel.

Tré - Svart/Hvítt (0 álit)

í Ljósmyndun fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Jæja, ég ætla að prófa að taka þátt í þetta skipti. Myndin var tekin á Canon EOS 350D á laugardaginn um klukkan 18:00 á leiðinni niður frá Glym. Mér fannst þetta tré henta vel til myndatöku svo ég smellti mynd af því. Notaði svo PhotoShop til að gera hana Svart/Hvíta og sullaði svo eitthvað í contrast, curves o.s.frv.

Oblivion kallinn minn (18 álit)

í Tölvuhlutverkaleikir fyrir 18 árum, 1 mánuði
Jæja, þetta er minn kall í Oblivion. Hann er ekki með hjálm á myndinni svo allir sjái síða, ljósa hárið hans en því miður getur hann ekki sveiflað því um eins og í “sjampóauglýsingunum”. En það er nóg komið af kjaftæði, ég tók bara screenshot í leiknum og breytti því yfir í JPG. Ég er nokkuð viss um að öllum er skítsama um sögu gaursins svo ég held bara kjafti.

Hátíð - Flugeldar (3 álit)

í Ljósmyndun fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Myndin er tekin á Nikon Coolpix 5700. Ef ég man rétt þá er hún tekin á 8 sek. rétt eftir tólf á Gamlárskvöld. Ég notaði tækifærið og sleppti því að sprengja sjálfur en tók myndavél og þrífót upp á hamar í hverfinu mínu og tók myndir.

Savage: the Battle for Newerth (8 álit)

í Herkænskuleikir fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Jæja, hér er annað screenshot sem ég tók í leiknum Savage. Fyrir áhugasama má geta þess að Savage 2 á að koma næsta vor, það má lesa meira um hann á http://www.s2games.com/

Savage (12 álit)

í Herkænskuleikir fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Screenshot sem ég tók í leiknum Savage. Fyrir þá sem hafa áhuga er hægt að ná í demóið hér á huga en þar er aðeins hægt að spila sem menn. Ég hef reyndar heyrt að hægt sé að ná í allan leikinn á netinu einhvers staðar. Þetta er mjög góður LAN leikur ef það eru nokkrir að spila.

Morrowind (4 álit)

í Tölvuhlutverkaleikir fyrir 19 árum
Veit ekki, fannst þetta bara flott screenshot. Allir eru að senda inn screenshots úr Morrowind svo mér datt í hug að gera það bara líka.
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok