Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Manimal
Manimal Notandi síðan fyrir 20 árum, 6 mánuðum Karlmaður
360 stig

NFL á NASN? (8 álit)

í Íþróttir fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Af hverju eru aldrei NFL leikir á NASN? Það stendur á heimasíðunni þeirra að það séu minnst fjórir leikir í beinni á viku?

Til að vera alveg viss (3 álit)

í Leikjatölvur fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Ég keypti notaða PSP vél sem sá sem seldi sagðist hafa keypt úti (Gleymdi að spurja í hvaða landi) til að geta spilað VCS strax. Er pottþétt enginn region kóði á leikjum í PSP?

Þvílíkur leikur! Inter 4 - AC 3! (9 álit)

í Knattspyrna fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Leiðinlegasta deild Evrópu í mínum augum bauð í kvöld upp á einn besta leik sem ég hef nokkurn tíman séð. 7 mörk, 9 gul, eitt rautt og mark dæmt af, sem sagt nánast allt sem fótbolti getur boðið upp á.

Sevilla vs Barcelona? (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Er hann hvergi sýndur?

Vantar sjónvarpssnúru fyrir NES (5 álit)

í Leikjatölvur fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Þar sem að ég fann tvær gamlar NES vélar og nokkra leiki og tvo gleðipinna niðri í geymslu um daginn en enga sjónvarpssnúru óska ég hér með eftir einni slíkri. Ég er til í að borga vel fyrir hana og jaffnvel láta PC og PS2 leiki fylgja með uppí. Ef einhver áhugasamur seljandi er á landsbyggðinni borga ég sendingarkostnað.

Deildabikarinn í kvöld (7 álit)

í Knattspyrna fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Eru leikirnir í enska deildabikarnum í kvöld sýndir á einhverri stöð? Hvorki Sýn né Sky Sports er með þá á dagskrá.

BO að hysja upp um sig buxurnar? (10 álit)

í Leikjatölvur fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Kannski er það bara ég en ég hef tekið eftir auglýsingum frá BO með DS vélina og leiki í hana í bíóhúsum og tímaritum upp á síðkastið. Hvað með ykkur :?

Tengja tölvu við sjónvarp (2 álit)

í Vélbúnaður fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Hvernig kapal þarf til að tengja tölvu við sjónvarp? Skjákortið í tölvunni á að styðja það en ég veit ekkert um hvernig kapal þarf.

Ahh, svo að svona vann Chelsea dolluna (14 álit)

í Knattspyrna fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Svona

Óska eftir PSP vél (2 álit)

í Leikjatölvur fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Vil kaupa notaða PSP vél á ca. 7000 - 9000. Má vera gölluð ef að ábyrgðarskírteini fylgir með. Verður að keyra Firmware 1.5. Engir leikir eða minniskort þurfa að fylgja.

Þjóðsöngurinn (7 álit)

í Hugi fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Hvar get ég nálgast þjóðsönginn á mp3 formi eða þá hvaða plötum?. Helst án söngs og í flutningi sinfóníuhljómsveitar.

Tveir PSP leikir til sölu og skemmd PSP vél (8 álit)

í Leikjatölvur fyrir 17 árum, 10 mánuðum
World Tour Soccer á 2500 GTA Liberty City Stories á 2500 Báðir saman á 4500 Skemmd PSP vél með litlum rákum sumstaðar á skjánum sem valda því að litir birtast vitlaust. Vélin er 100% nothæf en þessar skemmdir fara svoldið í mig. Með myndu fylgja 128 og 32 MB minniskort, hleðslusnúra, USB kapall og mjúk taska utan um vélina. Vélin er með Firmware 2.6 og getur því ekki keyrt Homebrew forrit og leiki. Þetta fer allt á 10000. Og ef einhver vill þetta allt verða það 12000 eða 13000 eftir samkomulagi.

Verð í rútu (7 álit)

í Hugi fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Veit einhver hvað kostar að fara með rútu frá Akureyri til Húsavíkur? Það er engin verðskrá yfir nákvæmlega það inni á bsi.is.

Fáránlegt Warcraft III TFT vandamál (2 álit)

í Blizzard leikir fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Það er semsagt þannig að áðan var ég að hosta Vampirism á battle.net og það er joinað í öll slottin og það er byrjað en eftir loading tímann koma skilaboð upp á skjáinn um að allir hinir hafi farið og til að gera þetta enn furðulegra þá var það sem áttu að vera tré fjólublátt og svart röndóttir kassar. Síðan prufaði ég að hosta Footy og það sama gerðist. Veit einhver WTF gæti verið í gangi?

Nokkrir leikir til sölu (3 álit)

í Leikjatölvur fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Er með löglegt eintak af CM 01/02 á PC til sölu á 1000 kr. Einnig Spartan: Total Warrior á PS2 á 2000, og eftirtalda á sérstökum losið-mig-við-þetta kjörum: Fifa 03 (PS2) á 500 Fifa 04(PS2) á 500 Sim City 4(PC) á 500 Soldier of Fortune(PC) á 500. Ef að þú vilt alla þessa fjóra færðu þá á 1000. Ef að þú vilt allt sem ég býð hér færðu það á 3000, og ef að þú villt Spartan og CM saman færðu þá á 2500. Leikirnir eru allir vel með farnir og jafnvel lítið sem ekkert notaðir. Tek ekki við...

Urrrrrrrrrrrrr!!! (15 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Helvítis einkabankinn hjá landsbankanum virkar ekki, og ef ég get ekki millifært þá kemst ég ekki á helvítis leikinn sem að ég ætlaði á klukkan 4. ARRRG!

Tímabelti (4 álit)

í Hugi fyrir 17 árum, 11 mánuðum
Verður ekki sami tími hér og í Englandi í sumar? Þ.e. ef að á dagskrá BBC yfir leiki á HM stendur 14:00 verður það líka klukkan 14:00 á íslandi?

Vice City Stories staðfestur á PSP! (7 álit)

í Leikjatölvur fyrir 17 árum, 11 mánuðum
www.gtaportable.com/vicecitystories/ Nákvæmlega það sem að þurfti til að stytta biðina eftr GTA 4. Vice City Stories kemur 20 október en þá verður um það bil eitt ár í útgáfu GTA 4. Það eru tvö tímasvið sem að mér finnst koma til greina í leiknum. Annaðhvort snemma á níunda áratugnum eða í nútímanum. Ég vona líka að það verði hægt að synda og jafnvel fljúga þó að ég efist nú um að það verði hægt að koma miklu fyrir á 1.8 GB diskum. Það virðist vera sem að eina leiðin sem að R* hefur til að...

7 Spursarar með......MATAREITRUN!!!!! (25 álit)

í Knattspyrna fyrir 17 árum, 12 mánuðum
Já þeir velja sér aldeilis heppilegan dag til að veikjast þessir blessuðu Spursarar. Samkvæmt Þessu eru sjö leikmenn úr aðalliðinu komnir með matareitrun en leikurinn á samt að fara fram. Meðal þeirra sem eru úr leik eru Aaron Lennon, Paul Robinson og Jermaine Defoe. Og bara til að minnast á það þá er stjórnarformaður Arsenal, David Dein í stjórn FA þannig að hann réð eihverju um hvort að leikurinn fari fram.

Hjálp með VC (3 álit)

í Leikjatölvur fyrir 17 árum, 12 mánuðum
Mig vantar kort þar sem er sýnt hvar er hægt að fara í side missions. Búinn að leita á Gamespot og Cheatplanet en finn ekkert.

Nýtt orð (12 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum
Hættið nú öll að segja og skrifa orðið SPAM (Silly pointless annoying mail) Segið og skrifið KÓLP; Kjánalegur ónauðsynlegur og leiðinlegur póstur.

Jahérna (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 18 árum
Hvers vegna í ósköpunum er Edgar Davids tekinn fram yfir Clarence Seedorf í hollenska landsliðið? Seedorf hefur verið með betri mönnum eins besta liðs Evrópu í vetur á meðan að Davids hefur skitið vel og vandlega á sig hjá Spurs. Ef að þið kíkið á spjallborð íslenska Tottenhamklúbbsins þá er minnst á það í þriðja hverjum póst hvað Davids hefur verið lélegur í vetur. En nei, Marco Van Basten tekur endanlega útrunna og myglaða mysu fram yfir mann á hátindi ferilsins, 29 ára gamall og í...

Breyta þessum kork (10 álit)

í Herkænskuleikir fyrir 18 árum
Mér finnst að það ætti að breyta þessum kork í almennan hjálparkork um alla herkænskuleiki. Það er ekki beinlínis eins og Emperor sé heitasti leikurinn í dag.

Pimp my garage (0 álit)

í Leikjatölvur fyrir 18 árum
www.gtapsp.com Það er einhver gaur sem að bjó til heilt svindlforrit fyrir LCS búinn að búa til annað forrit svo að það er hægt að modda bílana í leiknum. Núna er er verið að sýna á síðunni sem að ég tengdi hvernig þetta virkar allt saman en tékkið bara á þessu :)

Video! (2 álit)

í Hugi fyrir 18 árum
Bendið mér fljótt á síðu þar sem er hægt að hýsa myndbönd.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok