Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

LocoDuck
LocoDuck Notandi frá fornöld 36 ára karlmaður
1.208 stig

Grænn pallur (6 álit)

í Hjól fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Ekki að það skipti einhverju máli núna, en er þessi pallur: http://bigjump.is/?i=132&gallerypopview=true&catalog=1065&b=14,2243&img=10 ekki sá sami og ég, haukur, steini og fleiri fengum smíðaðan til að vera með eitthvað dæmi niður í Nauthólsvík fyrir löngu? besta hliðarmyndin hér: http://www.go-riding.com/hjalmar/hjalmar/pages/DSCF2768.htm síðan eru fleiri þarna… hmm hmm hmm TB Bætt við 4. október 2006 - 00:03 hérna er bigjump myndin

Tuning (13 álit)

í Jeppar fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Jæja viskubrunnar, Haldiði að það sé erfitt og dýrt að tuna 318 cid mopar 70´s vél sem er um 150 hp orginal!? í um og yfir 200 hp? Ég er að skoða pallbíla með svona vél eins og kannski sumir vita, veit ekki alveg hvort þessi mótor sé málið… það er mun erfiðara að finna þessa pallbíla með stærri vél en það detta jeppar inn með 360 og síðan 440 big block Ef maður fer að tuna svona minni vélar, fara þær þá að eyða hlutfallslega meira og eyðileggjast fyrr en ef maður myndi einfaldlega fá sér...

Kanntu eitthvað í Hollensku? (3 álit)

í Skóli fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Já ég sendi fyrirspurn á hollenska síðu og ég skrifaði á ensku, þeir eru greinilega það lost þarna að þeir geta ekki svarað mér á ensku þannig þeir svöruðu mér á hollensku. Ég er að spurja hvort það sé möguleiki að panta bíl af heimasíðunni þeirra og bara hvernig það myndi nokkurn vegin virka. Hún sendir þetta til baka: Het is mogelijk om vanuit het buitenland een auto te kopen in Nederland. U kunt hierover het beste met de adverteerder overleggen hoe de auto vervoerd zal worden naar...

Uppl um hversu margir bílar af ákveðinni gerð eru á landinu (5 álit)

í Bílar fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Já ef ég vildi nú fá upplýsingar um hversu margir bílar af ákveðinni gerð væru til á landinu og hvar á landinu, hvert myndi ég snúa mér? Get ég sem hluti sauðsvörtum almúganum nálgast slíkar upplýsingar? TB

Spurning um læsingu (14 álit)

í Jeppar fyrir 17 árum, 8 mánuðum
But the locking I was talking about was the locking of the differential in the transfer case, it works on the same principal. By default the W200 has no front or rear axle differential locks. The selections you have on the transfer case are: Hi-Lock, High, Neutral, Low, Low-Lock. Hvað er að gerast hér :/ hverskonar læsingar er maðurinn að tala um? ég finn ekkert um þetta á netinu… Þetta á að virka þannig að ef annað framhjólið er á klaka en hitt á malbiki á allt tog að fara í dekkið sem er á...

Passar þetta og hitt í húddið? (4 álit)

í Jeppar fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Þegar menn eru að velta fyrir sér hvað passar og passar ekki, hvað eru menn þá að horfa á. Er það bara plássið í húddinu eða eru það mótorfestingarnar og eitthvað fleira.. Hvað er það svona aðallega sem menn hugsa útí? TB

Hvar er best að kaupa ipod? (6 álit)

í Græjur fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Pabbi er að koma frá þýskalandi núna á fimmtudaginn, og ég fór þá svona að spá hvort ég ætti að nota tækifærið og láta hann kaupa einn ipod 30gb í fríhöfninni, eða á ég að reyna plata hann í að kaupa þetta útí Þýskalandi eða á maður bara að panta þetta á ebay? Hvar er best að kaupa þetta “fyrir mann í minni stöðu” t

Hyperlinka spurning (5 álit)

í Vefsíðugerð fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Ef ég er með eina stóra mynd, og það eru hlutir inná þessari mynd sem mig langar að láta hyperlink á, hvernig fer ég að? með von um svör TB

Er eitthvað varið í þennan spilara? (0 álit)

í Græjur fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Já hérna er hann..: http://cgi.ebay.com/ebaymotors/PYRAMID-CAR-RADIO-CD-MP3-Player-w-USB-PORT-STEREO_W0QQcmdZViewItemQQcategoryZ43947QQihZ017QQitemZ270010014781QQrdZ1QQsspagenameZWDVW Eru menn nokkuð með umboð fyrir þessu merki hér heima? ef maður myndi lenda í veseni með þennan væri maður þá í djúpum? eða gætu verslanirnar hérna heima hjálpað manni eitthvað? Hvernig líst fólki annars á hann? langar í spilara sem er 4x50w og með svona usb input fyrir mp3 spilara..hvað segir fólk? TB

Rally lancer bílar (12 álit)

í Bílar fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Hvernig bílar eru þetta nákvæmlega sem þeir nota í rallýinu eru þetta 1600cc mótorar sem eru ofan í þessu eða? TB

Fyrstu skrefin í surfinu (6 álit)

í Bretti fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Heyrðu ég er kominn með svolítinn áhuga á surf og kannski kaupi mér bretti einhvertíma En hvernig undirbýr byrjandi sig og vanur maður þegar það á að fara sörfa, í sambandi við að bara drukkna ekki. Menn kíkja á ölduspár og þannig en síðan er eitthvað sem heitir sog og fleira hættulegt.. Hvað þarf maður að hafa í huga fyrstu skiptin og síðan bara skiptin eftir það? TB p.s hvað eru svona surfpakkar að kosta?

NP203 (2 álit)

í Jeppar fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Hvaða hafa menn að segja um NP203 millikassanna? (og er ekki örugglega hægt að keyra í 2wd?) TB

Nýr banner (11 álit)

í Bretti fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Til hamingju fjarhundur og allir hugarar með nýja bannerinn! Hann er alveg að gera sig, hvað segja menn, ekki allir sáttir? TB

Lagið Romantica..?? (8 álit)

í Hugi fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Er að leita að þessu lagi, það er engin söngur í því, heyrði það á xfm um daginn (þetta er ekki romantica með Luno eða eitthvað þannig) hef prófað google en án árangurs. Hjálp mjög vel þegin Þakkir TB

Merkingar á brautinni á morgun (6 álit)

í Hjól fyrir 17 árum, 11 mánuðum
Ég er svona að spá hvernig þetta verður gert, verður brautin almennilega merkt eða verða bara nokkrir borðar hér og þar, eða ætla menn að mæta eitthvað fyrr og bara merkja þetta… Ég er nú ekki að tala um eitthvað heavy dæmi, en ef þetta verða nokkrir borðar, þá verð ég ábyggilega komin útá tún bara, sem væri ekki verra nema að þegar maður fer hratt útaf þessari braut getur það verið ansi snúið því að umhverfið þarna er helviti erfitt…. Hvað segja menn á ekki að merkja þetta þokkalega? eða...

Austfirðir, áttu heima þar? (7 álit)

í Hugi fyrir 17 árum, 11 mánuðum
Ef svo er, í hvaða bæ áttu heima, og er ennþá eitthvað af snjó eftir í fjöllunum kringum þig? t

Tape á lakk (4 álit)

í Bílar fyrir 17 árum, 11 mánuðum
Ég er að fara spreyja ofan í ryðbletti (er búinn að taka þá burt og grunna að sjálfsögðu) en þarf eitthvað til að afmarka blettinn af, svo lakkið spreyjist ekki útum allan bíl, hverskonar tape er gott að láta á lakkið er það bara venjulegt málingatape sem menn eru að nota eða? ef ekki hverskonar tape er þetta og hvar fæst það? Kv Tómas

Garðlist (10 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 11 mánuðum
Já, ætlaði bara að vara fólk við að reyna fá vinnu þar, þeir segja við þig að þú megir koma og þeir ætla testa þig í einn dag, ef þeir ráða þig færðu greitt fyrir daginn annars ekki, ég gerði þetta og þar sem ég var ekkert í vafa um að verða ráðin tók ég þátt í þessu munnlega samkomulagi. Ég fékk síðan ekki starfið og hann fer að vitna í samninginn, með veseni fékk ég samt greitt þegar ég talaði við eigandann (ég var víst ekki “týpan” en vann samt vinnuna vel) Ég veit af einum öðrum sem er...

Úr hverju eru bílarnir gerðir.. (7 álit)

í Jeppar fyrir 17 árum, 11 mánuðum
Já mig vantar upplýsingar um hina og þessa jeppa, t.d. skiptingu, millikassa, mótor og fl. Er einhver góð heimasíða sem coverar flesta jeppa og draslið ofan í/inn í þeim? eða hvað væri sniðugt að gera? Hef leitað á netinu með takmöruðum árangri. einnig sendi ég mail á fyrirtæki (chrysler) og er að bíða eftir svari frá þeim, en síðan þarf maður kannski uppl. um bíla sem eru ekki tengdir chrysler Er ekki einhver góð heimasíða sem þið lumið á? TB

Þarf Suzuki swift Gl varahluti (0 álit)

í Bílar fyrir 17 árum, 11 mánuðum
bæði efri og neðri stuðara að framan, bæði brettin hægri og vinstra megin, vinstra aðalljós og stefnuljós og eitthvað fleira e-mail - tommi@go-riding.com Takk TB

GM stefnir á fjöldaframleiðslu vetnisbíla árið 2010 (1 álit)

í Bílar fyrir 17 árum, 12 mánuðum
Hérna er fréttin ef menn hafa ekki lesið hana. http://www.mbl.is/mm/frettir/togt/frett.html?nid=1201866 Hvað finnst ykkur um þetta, haldiði að bílarnir verði samkeppnishæfir á öllum sviðum? En mér finnst þetta jákvætt, næst mun þykja flott að eiga vetnisbíl en ekki einhverja BMW jepplinga eða 6 hjóla Forda sem menga slatta, eyða bensíni og eru hættulegir í umferðinni nóg til að flutningabílum og öðru eins. TB

Herinn að fara (2 álit)

í Jeppar fyrir 18 árum
Já núna er herinn að fara eins og allir vita, og þætti mér ekki ólíklegt ef einhverjir ætla að selja t.d. bílana sína áður en haldið verður út. Sölunefnd varnaliðseigna er ekki lengur til eftir því sem ég best veit, en vitiði hver mun annast sölu á t.d. bílum og jeppum? eða hvar ég gæti fengið upl. um það. TB

dodge-inn fyrir utan Vöku (3 álit)

í Jeppar fyrir 18 árum
Ég sá þennan bíl fyrst fyrir nokkrum árum, þá var komin miði í rúðu frá gatnamálastjóra, síðan var hann allt í einu kominn í eitthvað stæði rétt hjá bílabúð benna, og núna situr hann fyrir utan Vöku.. Mér sýndist hann vera beinskiptur á 44", og sá sem átti hann var búinn að bolta niður sæti á pallinn.. (með palhúsi) Hvað er málið með þennan bíl?? kann einhver hérna smá bort úr ævisögu þessa bíls eða hvað.. (ekki það að ég hafi áhuga að kaupa samt :)) TB

Kaup á númerlausum bíl... (4 álit)

í Bílar fyrir 18 árum
Já, núna er ég að fara kaupa mér tjónaðan númeralausan bíl af bílasölu á Borgarnesi, gæjinn sem á bílasöluna á bílinn sjálfur.. Hverskonar pappírsvinnu erum við að tala um til þess að öll mín mál verði í lagi.?? TB

Þið sem eigið 8 cyl. bíla (16 álit)

í Jeppar fyrir 18 árum
Ég er svona að spá, þið sem eigið 8 cyl jeppa (bensín) Er alveg heví vesen að reka þetta? og ef þið berið ykkur saman við aðra jeppa kalla t.d. Patrol, Hilux og fleiri, eru þið þá alltaf með langsamlega mestu eyðsluna eða viljiði meina að það muni ekki svo miklu peningalega séð en helling hvað varðar kraft og slitlega séð (líklega minna slit á vélum sem eiga auðveldara með að ganga, en auðvitað eru einhverjir kannski á þyngri jeppum og hlutfallslega er þetta sama erfiði) Hvernig líst ykkur...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok