Ég dýrka þessa mynd algjörlega. Söguþráðurinn, talmálið, útlitið, notkun tónlistarinnar, ekkert sem mér finnst ekki virka fullkomlega. Sá hana fyrst með bróður mínum fyrir tveimur árum að ég held, ekkert ofsalega ábyrgðarfullt, “komdu litla systir, horfðu með mér á mynd með ofur-ofbeldi og nauðgunum”, en ég þakka honum kærlega fyrir að kynna mig fyrir þeirri snilld sem myndin er. Held þetta sé samt ein af þessum myndum sem þér finnst rosalega góð eða fílar bara eiginlega ekki. Horfði á hana...