Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Hlutleysi (9 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Eiga samtök á borð við Slysavarnarfélagið Landsbjörg ekki að gæta hlutleysis? T.a.m. hvað varðar stjórnmál? Mér finnst a.m.k. persónulega mjög rangt að Jón Gunnarsson (www.jongunnarsson.is) framkv.stj. Landsbjargar skuli auglýsa framboð sitt í prófkjöri Sjálfstæðismanna með mynd af sér í Landsbjargarfatnaði… Hvað finnst ykkur? Tengill á auglýsinguna (sem birtist m.a. í Fréttablaðinu sunnudaginn 5. nóvember): http://vefblod.visir.is/public/getFile.php?type=image&file=1_18_5.jpg

Mistök (7 álit)

í Skóli fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Já komiði öll sæl. Mig langar að vita, eru einhverjir hér sem komust ekki inní skólann sem þeir völdu sem 1. val vegna mistaka… eða er ég sá eini?

Einkunnir (7 álit)

í Skóli fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Þið sem komust inn í MH, hvað voruð þið með í meðaleinkunn?

Svör (2 álit)

í Skóli fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Það eru engin svör farin að koma frá MH, er það nokkuð?

SUPERSTAR (16 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Mig langar að vita, fór einhver á SUPERSTAR í Loftkastalanum?

Superstar (2 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Rokksöngleiknum Jesus Christ SUPERSRAR verður sýndur í Loftkastalanum í Reykjavík laugardaginn 18. og sunnudaginn 19. júní kl. 20 bæði kvöldin. Það er Leikfélag Hornafjarðar og Framhaldsskólinn í Austur Skaftafellssýslu sem sýna verkið undir leikstjórn Gunnars Sigurðssonar. Sýningar hópsins slógu í gegn fyrir austan og buðu forsvarsmenn Loftkastalanum að koma með sýninguna suður til sín. Þetta er glæsileg uppfærsla af vinsælustu rokkóperu allra tíma. Ég hvet alla til að fara á þessa sýningu....

Tilkynning frá MH (4 álit)

í Skóli fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Hér að neðan er tilkynning sem skrifstofa Menntaskólans við Hamrahlíð sendi frá sér þann 15. júní 2005, klukkan 17:15. Undir fyrirsögninni: “Góð aðsókn að skólanum.” “Alls hafa um 490 nemendur sótt um skólavist í MH og af þeim voru 372 nýnemar að sækja um strax að loknum grunnskóla. Gert er ráð fyrir að í skólann verði teknir um 200 nýnemar næsta haust og lokið verður við úrvinnslu umsókna í seinni hluta næstu viku. Umsóknir þeirra sem við getum ekki tekið inn í skólann verða sendar áfram...

Skólagjöld (6 álit)

í Skóli fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Vita einhverjir hérna hversu há skólagjöld eru í ríkisrekknuskólunum? Ég held að það sé sama/svipað í þeim öllum en veit ekki hve hátt. Hins vegar er dýrara að vera í einkareknum skólum eins og Versló, Hraðbraut og fleiri skólum.

ISIC plúskort (0 álit)

í Fjármál og viðskipti fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Komið öll sæl Er einhver hér með ISIC plúskort frá Sparisjóðnum? Ef svo er getið þið þá sagt mér helstu kosti og galla þessarar námsmannaþjónustu…? Mælið þið með þessu korti? Með fyrirfram þökk.

Eftir framhaldsskólann...? (23 álit)

í Skóli fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Eruð þið eitthvað farin að spá hvað ykkur langar að læra eftir framhaldsskólann? Eru kannski einhverjir hérna löngu búnir að ákveða framtíðarstarfið…?

Lykilorð (16 álit)

í Skóli fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Jæja, eru einhverjir búnir að fá þetta blessaða lykilorð til að sækja um í framhaldsskólunum?

Útskriftarferðir (10. bekkur) (21 álit)

í Skóli fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Jæja kæru 10. bekkingar, enn og aftur til hamingju með prófalokin. En nú langaði mig að forvitnast, fer 10. bekkur í útskriftarferð í ykkar skóla og ef svo er, hvert er farið? Minn skóli fór t.d. í þriggja daga (tveggja nátta) ferð upp á jökul þar sem gist var í skála og farið á snjósleða, skíði og fleira skemmtilegt. En endilega segið hvernig þetta er hjá ykkur…!

Stress í gangi? (9 álit)

í Skóli fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Hvernig er það, er stress í ykkur 10. bekkingum fyrir samræmda stærðfræðiprófið? Sjálfur er ég farinn að finna fyrir dálitlum kvíða… :S

Að loknu samræmdu prófi í Íslensku (61 álit)

í Skóli fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Jæja þá er fyrsta samræmda prófið búið. Íslenskan að baki. Enskuprófið á morgun… En jæja hvernig gekk ykkur í Íslenskunni? Hvernig fannst ykkur prófið..? Mér fannst mér sko ganga ágætlega og prófið sjálft allt í lagi nema að ég er alveg viss um að spurning 8 í hlustuninni var bara lesin einu sinni! Hvað segið þið?
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok