Hvaða fæða er með A-Vitamíni? Eða þú veist, helsta fæða? Kemur sér illa samt að mega ekki drekka né fara í tan, það sökkar feitan. En ég mun færa allar fórnir til að losna við þessar leiðindabólur.
Já einmitt, ég ætla að vera geðveikt duglegur að nota svona hreinsivörur þegar þær verða (vonandi) farnar. Eða semsagt duglegri :) En þetta er allt að fara í rétta átt, búinn að panta tíma hjá lækni og svona.
Já, og plús það, þá nota ég biotherm hreinsikrem á hverjum degi, Clinique andlitsskrúbb, og Vitchy rakakrem. Eeeen, enginn árangur, svo lyfin eru víst seinasta stoppustöðin.
Nú ætla ég pottþétt á þetta lyf. Ég á samt pottþétt ekki eftir að þekkja sjálfan mig með flotta húð .. búinn að vera með leiðinlega húð svo lengi :) Haha, en takk fyrir svarið.
Búinn að bíða í þrjú ár. Bólurnar byrjuðu að myndast fyrir þrem sumrum. Biðin er ekki aaalveg að virka. Einnig búinn að drekka vatn eins og vitfirringur, og vera á Fiance geli, sem er bara ekki að virka. Svo meiri bið er bara ekki kostur fyrir mig.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..