Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

KITT
KITT Notandi frá fornöld Karlmaður
1.656 stig

Bilar (0 álit)

í Bílar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Tommi Makinen hér á ferð við prófanir á Subaru Impreza WRC í Monte Carlo í seinustu viku. Þetta var ein af fyrstu myndunum sem var birt af honum undir stýri á Subaru Impreza og kættust fellow Subaruaðdáendur í UK mikið við þá sjón en þeir hafa nú margir hverjir tekið upp á því að kalla hann GOD.

Bilar (0 álit)

í Bílar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Ford Ka sem smá Scooby effect, þe fyrir utan þennan spoiler en hann er frekar vafasamt fyrirbæri. Húddscope-ið er hinsvegar argasta snilld ;)

Bilar (0 álit)

í Bílar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Nýi Poloinn í Super 1600 útgáfu

Bilar (0 álit)

í Bílar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Þetta er Ford Fiesta, amk var þetta einhverntímann Ford Fiesta áður en eigandinn ákvað að lengja bílinn aðeins. Þessi bíll stóð fyrir utan þjónustusvæði Ford einn daginn á meðan Rally GB fór fram og voru Bretarnir sem tóku myndina á því að það væri orðið æði hart í ári hjá Ford ef þeir hefðu ekki efni á að skaffa Colin McRae flottari limo……. Respect ;)

Bilar (0 álit)

í Bílar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Subaru Impreza Sports Wagon Euro Style Concept sem var kynntur á Bílasýningunni í Tokyo um daginn. Ekki er ég viss um hvernig Japanarnir fengu út að þetta útlit myndi ganga betur í Evrópubúa en framendinn minnir óneitanlega á Subaru Legacy B4 Blitzen sem mér skilst að Porsche hafi eitthvað komið nálægt hönnun á

Bilar (0 álit)

í Bílar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Ford Focus bíll McRae eftir útafaksturinn í morgun. McRae tók fulla ábyrgð á þessu óhappi en hann sagðist hafa verið á fullri ferði í 5. gír og farið inn í hægri beygju þegar bíllinn lendir ofan í holu í vegkantinum sem olli því að Fordinn tókst á loft og fór amk 4 veltur í loftinu áður en hann kom aftur niður á jörðina. McRae og Grist sluppu lítið meiddir eftir flugferðina.

Bilar (0 álit)

í Bílar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Colin McRae hér á fullri ferð í upphitun fyrir breska rallið sem hefst um kl. 19:10 á morgun, fimmtudag. McRae sigraði hér árið 1994,1995 og 1997 en hann tryggði sér sinn fyrsta og eina heimsmeistartitil árið 1995 í þessu ralli með flottum og öruggum akstri. Sjálfur hefur hann sagt að ef hann ætli sér að standa uppi sem sigurvegari á sunnudagskvöld verði hann að aka enn betur er árið 1995. Eins og sést á myndinni er talsvert neistflug undir bílnum enda verður hver einasta beygja skorin eins...

Bilar (0 álit)

í Bílar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Subaru STX hugmyndabíll sem var kynntur af Subaru á The Los Angeles Auto Show árið 2000. STX stendur fyrir Subaru Truck Experimental en segja má að bíllinn sé að miklu leiti byggður á grunni Subaru Outback og þar að auki knúinn áfram af breyttri útgáfu af 2500 cm3 Outback vélinni sem er komin með supercharger í þessari útfærslu sem tryggir 230 hö.

Bilar (0 álit)

í Bílar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Nissan GT-R eins og hann kom fyrir sjónir á bílasýningunni í Tokyo.

Bilar (0 álit)

í Bílar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Nissan Z 350

Bilar (0 álit)

í Bílar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Ford Ka í Martini Racing búningi, alls ekki svo galið.

Bilar (0 álit)

í Bílar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Mitsubishi Lancer Evolution VII

Bilar (0 álit)

í Bílar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Telstra Rally Australia 2001 hófst nú í kvöld og stendur fram á sunnudag. Hér hafa menn svo eitt algengasta aðvörunarskiltið á vegunum í Ástralíu.

Bilar (0 álit)

í Bílar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Svona hefði Impreza Turbo litið út í blæjuútgáfu. Subaru Impreza Turbo Special Edition Photoshop

Bilar (0 álit)

í Bílar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Framleiðsluútgáfa Nissan Z eins og hún er sýnd á The Tokyo Motorshow 2001. Sjá nánar á www.cardesignnews.com

Bilar (0 álit)

í Bílar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Einn athyglisverðasti búnaðurinn í Nissan Sunny GTi-R Jap. Spec var án efa regnhlíf sem mátti draga út úr sérstöku hólfi í hurðinni farþegamegin. Regnhlífin var ekki í UK Spec útgáfunni hvernig sem stóð nú á því.

Bilar (0 álit)

í Bílar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Nissan Sunny 2000 GTi-R. Tjúnaður af Norris Design, með nýjum intercooler sem glittir í fyrir aftan framstuðarann, 17" MOMO Arrows og svo með mjög frambærilegum hliðarsvuntum og framstuðara frá Kudos Evolution.

Bilar (0 álit)

í Bílar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Þetta er bíll Tommy Makinen eftir rosalegan árekstur við vegrið í dag á Korsíku. Við áreksturinn kom upp eldur í bílnum sem valt á toppinn og rann áfram eftir veginum og stöðvaðist að lokum á snarbrattri klettabrún. Makinen komst út úr bílnum við illan leik meiddur í baki en aðstoðarökumaður hans sat fastur. Bíllinn stóð svo tæpt á klettabrúninni að menn lögðu ekki í að losa hann úr bílnum fyrr en búið var að binda bílinn fastan við annan bíl ofar á veginum og glittir í kaðalinn vinstra...

Bilar (0 álit)

í Bílar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Jaguar R Coupe séður aftan frá á Bílasýningunni í Frankfurt. Takið eftir bensínlokinu neðst í hægra horninu á myndinni. Krómað með 2 athyglisverðum flipum sitthvoru megin.

Bilar (0 álit)

í Bílar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Mazda RX-8 en lokaútgáfa bílsins verður sýnd á Tokyo Motor Show 2001 en hún hefst 27. okt nk. RX-8 er 4 dyra coupe með nýrri Wankel vél sem skilar 250 hö @ 8500 rpm. Á sömu sýning frumsýnir Mazda einnig 4-dyra millistærðar bíl sem nefnist Mazda Atenza en sá verður seldur utan Japans undir nafninu Mazda 6.

Bilar (0 álit)

í Bílar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Það fyrsta sem manni dettur í hug eftir að maður verslar sér Porsche Boxster er að smella hjólagrind ofan á toppinn…..

Bilar (0 álit)

í Bílar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Þessi skýrir sig alveg sjálf…..

Bilar (0 álit)

í Bílar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Svona fer fyrir álfelgum þegar þær lenda utan í steinkanti á fullri ferð en þessi felga er undan bíl Petter Solbergs.

Bilar (0 álit)

í Bílar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Það voru ekki aðeins nýjir bílar sem voru kynntir á Bílasýningunni í Frankfurt. Toyota kynnti til sögunnar nýtt logo sem sést á meðfylgjandi mynd. Logoið myndar stafinn T sem stendur fyrir Toyota. Til að byrja með ætlar Toyota að nota þetta logo fyrir Formula 1 lið sitt enda má finna stafinn F hægra meginn í logoinu og tölustafinn 1 vinstra megin. Einnig má lesa út stafinn V sé horft á svarta svæðið vinstra megin og rauða svæðið hægra megin og á það að standa fyrir “Victory”.

Bilar (0 álit)

í Bílar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Petter Solberg hér á ferð í Rally New Zealand sem hófst í gærkvöldi. Vegna tímamismunar eru sérleiðirnar keyrðar að nóttu til að íslenskum tíma og því ættu úrslit að vera ljós á sunnudagsmorgun.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok