Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Jonzi
Jonzi Notandi frá fornöld 1.184 stig

Thuram langar til Milan! (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum
Einn af sterkari varnarmönnum í heiminum, Lilian Thuram hjá Parma, hefur látið hafa eftir sér að honum væri heiður að því að fara yfir til AC Milan og spila þar við hlið Paolo Maldini. Það yrði nú ekki amalegur varnardúett, hólí mólí!!! Þetta sýnir nú bara þann status sem Milan hefur í boltanum - það er nokk sama þó þeir eigi slök tímabil inná milli, öll stærstu nöfn heimsins fara með ánægju til liðsins.

Milan á beinu brautinni! (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum
AC Milan voru að enda við að leggja meistara Lazio á Stadio Giuseppe Meazza (San Siro) með marki frá Boban. Síðast þegar Lazio spiluðu í deildinni myrtu þeir Juve 4-1 svo þetta er vel gert hjá þeim rauðsvörtu. Með þessu áframhaldi náum við ábyggilega í Meistaradeildarsæti! Smá leikmannafréttir í lokin; nýjustu nöfnin í kaupsögunni miklu hjá Milan eru tveir af sterkustu mönnum Bundesligunnar, þeir Sebastian Deisler, burðarás Hertha Berlin og bjartasta von þýska landsliðsins, og Zé Roberto hjá...

Nýr maður til Juve. (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Loks hefur Carlo Ancelotti tekist að fá ráðamenn Brescia til að selja Aimo Diana til veldisins í Tórínó. Juventus tilkynnti í dag að kantmaðurinn yrði Juventus-leikmaður frá og með júlí næstkomandi.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok