AC Milan voru að enda við að leggja meistara Lazio á Stadio Giuseppe Meazza (San Siro) með marki frá Boban. Síðast þegar Lazio spiluðu í deildinni myrtu þeir Juve 4-1 svo þetta er vel gert hjá þeim rauðsvörtu. Með þessu áframhaldi náum við ábyggilega í Meistaradeildarsæti!

Smá leikmannafréttir í lokin; nýjustu nöfnin í kaupsögunni miklu hjá Milan eru tveir af sterkustu mönnum Bundesligunnar, þeir Sebastian Deisler, burðarás Hertha Berlin og bjartasta von þýska landsliðsins, og Zé Roberto hjá Bayer Leverkusen.