Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Isiss
Isiss Notandi frá fornöld 82 stig

Hundar í flugvél (10 álit)

í Hundar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Þið sem hafið reynslu af því að fara með hundana ykkar í millilandaflug, hvaða reynslu hafið þið af því? Voru hundarnir ykkar á róandi? í hvernig ástandi voru þeir eftir flugið, hvernig bjugguð þið um þá osfrv.? Litli strákurinn minn er nefnilega að fara í flug og það væri gott að heyra frá einhverjum með reynslu af svona. Kveðja Isiss

Hundabúr til sölu (3 álit)

í Hundar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Stórt hundabúr, fyrir labrador eða svipaða stærð. Verðhugmynd 10þ. uppl s: 861-9262 eða sendið mér skilaboð.

Umhverfisþjálfun (4 álit)

í Hundar fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Hefur einhver reynslu af svoleiðis með stálpaðan hund? Hvernig fer þetta fram og hvar er hægt að nálgast upplýsingar um þetta, netsíður´, góðar bækur osfrv. Ef einhver kannast við þetta er ég til í allar upplýsingar Isiss

RÝMINGARÚTSALA !!! (5 álit)

í Heimilið fyrir 21 árum
borðstofuborð + 6 stólar, hágæða sófasett 3+1+1, stofuborð, glerskápur(kirsuberjaviður) og þvottavél. SELST ÓDÝRT V/ÞARF AÐ SELJAST STRAX !!! Allar uppl. í síma 861 9262 / 848 4845 EKKI senda skilaboð á huga Einnig gefins á sama stað hvítar hillur 2 stk, svartur sjónvarpsskápur, geilsadiskastandar ofl. - hægt að koma og skoða á morgun föstudag.

Innbú til sölu (1 álit)

í Heimilið fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Jæja nú þarf ég að selja allt innbúið mitt vegna flutninga, 2ja ára gamalt og vel með farið, so here goes….. Sófasett, grænt Alma clara frá sérhúsgögnum sjá mynd (reyndar rautt)http://www.serhusgogn.is/myndir/sofasett/sofasett.htm Borðstofuborð og stólar frá Habitat úr kirsuberjavið M/ 6 stólum Glerskápur úr kirsuberjavið frá Habitat stofuborð með glerplötu úr kirsuberjavið frá Habitat Sjónvarpsskápur m/snúningsplötu úr kirsuberjavið frá Hirzlunni Gbæ magnari og geislaspilari m/ tveimur...

Jólatré ??? (3 álit)

í Hátíðir fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Sælir jólahugarar ! Þannig er málið að við litla familían vorum að höggva okkur jólatré í dag en erum ekki alveg viss um hvort maður þurfi að gera eitthvað sérstakt við það til þess að halda því fallegu fram yfir jólin. Ég heyrði um daginn að maður gæti þurft að sjóða fótinn eða eitthvað þannig……..það væri gaman ef einhver hefði reynslu af þessu og gæti frætt mig frekar um þetta mál… Takk Jólakveðjur Isiss

Dýrakirkjugarðar (1 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Vitið þið til þess að það séu einhverjir dýrakirkjugarðar hérna á Íslandi og hvar þá? Endilega ef þið hafið einhverja hugmynd látð vita. Kv Isiss

óska eftir 2 stórum hundabúrum (1 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ef einhver á stórt hundabúr fyrir Schafer (járnrimlabúr) sem hann vill losna við.. endilega sendið mér skilaboð hér á huga. Takk Isiss

Gelding (4 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Sæl hundahugarar.. nú langar mig að biðja um álit ykkar og reynslu á geldingu hunda. Þannig er að ég er með tvo hunda og mér hefur bæði verið ráðlagt að láta gelda þá og svo ekki. Rökin fyrir geldingu eru þau að hundurinn fari ekki að heiman þ.e. verði heimakærari og svo eru rökin fyrir því að gelda hann ekki að hann verði heimakærari og þar með grimmari (passar meira upp á sitt svæði) og svo að hann fitni. Reyndar hef ég nú tekið þá ákvörðun að gelda ekki hundana mína, þar sem þeir stinga...

Veggborðar !!! (1 álit)

í Heimilið fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Hæ, getur ekki einhver snillingurinn hérna gefið mér gott ráð til þess að losa veggborða af veggjum, ég er búin að reyna að bleyta upp í þeim en það gerir ekki mikið gagn (þarf samt að hamast á þessu með sköfu)… þeir eru vel límdir en ég hef ekki hugmynd um með hvernig lími. :( Ef einhver hérna kann gott ráð þá má endilega deila því með mér! Kv Isiss

Óska eftir stóru hundabúri (1 álit)

í Hundar fyrir 22 árum
Ef það er einhver þarna úti sem á stórt hundabúr (fyrir Schafer) sem hann/hún vill selja ódýrt þá endilega látið heyra í ykkur! Kveðja Isiss
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok