Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Salir til leigu??? (2 álit)

í Djammið fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Veit einhver um sali undir partý sem maður getur leigt og kosta ekki morðfjár??? Það má alveg vera staður með opin bar bara mig vantar sal… <br><br>Hrebbna

Mudslide og aðrir drykkir (1 álit)

í Matargerð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Hér kemur uppskrift að snilldardrykk. Þetta er eins og shake en samt alveg þræláfengt en ekkert áfengisbragð. Baileys eða annar irish cream líkjör (carolans,brendans) Vodki Ís Klakar mjólk súkkulaðisósa Ok setur klakana og ísinn í blender og smá mjólk! Síðan setur maður alveg slatta af Baileys og helmingi minna af vodka. Til að skreyta tekuru súkkulaðisósuna og þurrt hreint glas og sprautar inn í glasið í hringi meðfram brúninni alveg upp. Síðan hellir maður drykknum út í og voilá. Þetta er...

hvaða kennari? (4 álit)

í Golf fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Jæja nú er ég búin að fikta svolítið lengi og langar að fara í tíma en ég veit ekki til hvers ég á að fara. Getur einhver bent mér á góðan golfkennara? Ég ætla sko að gera þetta almennilega í sumar!<br><br>Kveðja, Hrebbna

Nokia 3210 (2 álit)

í Farsímar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég keypti nokia 3210 síma fyrir u.þ.b. einu og hálfu ári síðan sem er ekki frásögu færandi nema hann er alltaf að bila. Ég fékk meira að segja nýjan alveg eins síma þegar hann var enn í ábyrgð en hann er líka alltaf að bila. Ég bara spyr á einhver við þetta sama vandamál að stríða með sinn síma? Kveðja Hrebbna

fleiri áhugamál (1 álit)

í Hugi fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Nokkrar hugmyndir af nýjum áhugamálum eru: *leiklist og ymsar aðrar listagreinar. *Eins og einhver skrifaði hér áður sjónvarpsþættir. *Gemsar (algeng vandamál og fl fl )

Köflótt (6 álit)

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Jæja það er greinilegt að köflótt sé að komast í tísku allavega ef marka má búðir hér á landi og erlendis. En málið er mér finnst þetta ekkert sérstaklega flott tíska. Það er eitthvað við þetta sem ég fíla ekki. Að vísu hef ég ekki séð marga hér á landi í svona fötum. En ég er viss um að það eigi eftir að vera miklu meira af þessu á næstu vikum. En hvernig finnst ykkur þessi tíska?

Köflótt (5 álit)

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Jæja það er greinilegt að það er verið að reyna að koma köflóttum fötum í tísku. Allavega í London er allt köflótt og ég hef líka séð þetta svolítið hérna heima. Það er eitthvað við svona köflótt föt sem ég fíla alls engan veginn. Hvað finnst ykkur?
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok