Ég þurfti að slökkva á útvarpinu mínu þegar ég heyrði þennan viðbjóð. Missti þetta litla álit sem ég hafði á Sign þegar þeir eyðilögðu Youth Gone Wild með Skid Row, en þeir fóru alveg yfir strikið þegar þeir ákváðu að harkalega nauðga einum helsta þungarokksslagara fyrr og síðar. Held að þeir í Iron Maiden myndu bara móðgast við að heyra þetta væl. Og já, Bruce Dickinson er 50 ára í dag, yaay =D
Ah já, þetta er brutal hljómsveit sko.. Á samt bara eitt lag með þeim þar sem gaurinn missir sig í einhverri svakalegustu falsettu ever, en engu að síður gott band
Snilldar hljómsveit, hef ekki heyrt neitt lélegt með þeim hingað til. Samt sem áður voru þeir ekki að heilla mig live, en engu að síður mjög gott efni hér á ferð
The Black Dahlia Murder, Suicide Silence, Darkthrone, Cryptopsy (gamla), augljóslega FUCKIN SLAYEEEERRRH! Celestine, Napalm Death, Municipal Waste, Gallhammer og svo helling fleira er ég búinn að vera að hlusta á nýlega
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..