Tie-off tounge split - day 1 Er að kljúfa tunguna í mér með aðferð sem heitir Tie-off.
Hún felst í að girni er þrætt í gegnum tungugat og utan um tungubroddinn, hert vel svo að girnið hægt og rólega skeri sig í gegnum tunguna.

Kom loks girninu í gegn og er þar með byrjaður.
Sársaukinn er töluverður, og mjög óþægilegt að nota tunguna á nokkurn hátt, ss tala og borða og þess háttar, en því meira sem ég hreyfi tunguna því hraðar klofnar hún.

Set inn myndir af ferlinu fyrir þá sem hafa áhuga á að fylgjast með svona aðgerð…en vill á sama tíma taka fram að body-mods eru ekki leikföng. Þetta er ekki eitthvað sem er hægt að prófa uppá flippið og hætta svo við. Svo öll mod skal maður íhuga gaumgæfilega fyrir sér með framtíðina í huga, og leita til fagmanna fyrir ráðleggingar og aðgerðirnar sem þau krefjast.
(Mæli með Copenhagen Body Ekstreme í Danmörku og Quinten, gesta-modara tattoo og skart hérlendis).