Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

GunnarThor
GunnarThor Notandi frá fornöld 38 ára karlmaður
138 stig
Drink mate! Get the noise!

Rafmagnsgítar til sölu (3 álit)

í Hljóðfæri fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Svartur Ltt. Viper-50 rafmagnsgítar til sölu. Var keyptur í Tónastöðinni fyrir rúmu ári og er í góðu ástandi, nánari upplýsingar eru á http://www.espguitars.com/guitars_viper.html Ritter taska fylgir. Þetta er fínn byrjendagítar. Verðhugmynd er 20 þúsund, en þú getur gert tilboð.

Guts eftir Chuck Palahnuik (1 álit)

í Bækur fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Mig langaði bara að benda fólki á smásöguna “Guts” eftir Chuck Palahnuik, sem er frægastur fyrir að hafa skrifað “Fight Club”. Hún hefur bara birst í Playboy, ég veit því miður ekki hvaða tölublaði, og er annars óútgefin, en það má finna hana á netinu ásamt upptökum af Palahnuik sjálfum að lesa hana. Einn linkur á hana er hér fyrir neðan, smellið bara á “Guts” hérna niðri eða setjið slóðina inn í vafrann ykkar. Ég vil líka benda fólki á að það les þessa sögu á eigin ábyrgð. “From where you...

Pixies miði til sölu - 25. maí (1 álit)

í Rokk fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Eitt stykki Pixies miði er til sölu á fyrri tónleikana, 25. maí. Ég kemst því miður ekki á þá og er búinn að redda mér miða á seinni, en ef einhvern langar í miða á svona 3500 (kostar 4500 út í búð) má hann senda mér skilaboð. Gunnar.

Drink mate! Get the noise!

Blúsband (14 álit)

í Jazz og blús fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Er eitthvað fólk hérna sem hefði áhuga á að stofna blúsband, hvort sem það yrði bara jamband eða eitthvað meira? Ég er bassaleikari og er að leita að hljóðfæraleikurum sem eru að fíla þessa tónlist og langar að spila hana. Áhugasamir geta haft samband hérna eða í gegn um skilaboð.

Drink mate! Get the noise!

Bassi til sölu (3 álit)

í Hljóðfæri fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Hohner Rockwood byrjendabassi til sölu, verðhugmynd um 10.000 en það má alveg semja um það. Svartur precision í ágætis ástandi. Sendið skilaboð hingað á Huga ef þið hafið áhuga eða viljið spyrja um eitthvað.

Drink mate! Get the noise!

Nýji Bang Gang (2 álit)

í Rokk fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Vitiði hvort nýji Bang Gang diskurinn er kominn út og hvað hann heitir? Gamli var alger snilld í gegn og ég er orðinn þreyttur á að bíða eftir nýja.

Drink mate! Get the noise!

Já! Já! Já! Já! (3 álit)

í Rokk fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Af www.maus.is: “”musick“ er farin út í framleiðslu!! það er okkur sönn ánægja að tilkynna að platan okkar nýja, ”musick“, er nú lögð á stað út í framleiðslu. hún er því ekki lengur í okkar höndum. við bíðum því sérlega spenntir eftir að fá öll eintökin send hingað heim til íslands. útgáfudagurinn 12. maí sem stefnt var á mun væntanlega seinka aðeins því venjulega eru eintökin ca. 2-3 vikur að skila sér heim. meira um þetta síðar…” JÁ!!!

Drink mate! Get the noise!

Læsing á geisladiskum (5 álit)

í Rokk fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Hvernig er aftur hægt að komast framhjá læsingunni á íslenskum geisladiskum frá Skífunni? Ég nenni ekki alveg að ná í allan diskinn á netinu og uppfæra síðan winamp bara til að geta hlustað á hann í tölvunni.

Drink mate! Get the noise!

Nýtt Zwan efni (0 álit)

í Rokk fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Meistari Corgan hefur sett þrjú ný lög inn á heimasíðu Zwan (www.zwan.com), farið inn á Audio/Video efst í hægra horninu og þar eru lögin, plús myndbandið við Honestly og efni sem verður á DVD disknum.

Drink mate! Get the noise!

Hvaða íslenska lag er þetta? (8 álit)

í Rokk fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Man einhver eftir lagi sem var vinsælt á Radíó X í sumar sem var keyrt áfram af bassariffi og hafði þennan texta einhversstaðar í versi eða brú: “Okkar krafa er ekki ósanngjörn / Við viljum að hjörtu þín slái í takt við okkar.” Og viðlagið byrjaði á orðunum: “Finn hvernig lygin og …”? Mér datt helst í hug að þetta væri Maus en þetta er ekki á “Í þessi sekúndubrot…” og er Musick ekki eina lagið sem hefur heyrst af nýju plötunni? Man einhver hvaða lag og hvaða hljómsveit þetta...

The Birthday Party (1 álit)

í Rokk fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Er hægt að fá einhverja diska með þeim hér á landi?

Drink mate! Get the noise!

Tónlist - Annað (9 álit)

í Hugi fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Þeir sem vilja áhugamál fyrir “Annað” á tónlist, svo sem blús, reggí, klassík og fönk, skrái sig hér. Þetta eru þeir sem eru komnir: GunnarThor Lune Jesper Dojo larandaria barrett

Drink mate! Get the noise!

Blús og Reggí (8 álit)

í Rokk fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Það var rætt þegar Jazz áhugamálið var stofnað að stofna Blús og Reggí áhugamál, Jazzinn er kominn en það vantar blús. Þannig hverjir hérna hefðu áhuga á að sjá Blús og Reggí áhugamál?

Drink mate! Get the noise!

Færeyska lag (5 álit)

í Rokk fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ég var að sjá eitthvað geðveikt myndband með færeysku metalbandi í sjónvarpinu, hvað hét aftur hljómsveitin sem kom hérna í kring um Músíktilraunir og veit einhver hvað þetta lag heitir? (Svoldið óljóst, ég veit.)

Drink mate! Get the noise!

Zeppelin koma saman aftur! (11 álit)

í Rokk fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Af heimasíðu www.relix.com “British tabloids are reporting that the three surviving members of Led Zeppelin, lead singer Robert Plant, guitarist Jimmy Page and bass player John Paul Jones, will reunite this coming summer for an American tour. Jason Bonham, son of former Zeppelin drummer John Bonham who died in 1980, will join the group on drums. Page and Plant have toured together and solo in recent years, but this is the first time the three will tour together as the reunited Zeppelin....

Daysleeper (7 álit)

í Rokk fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Hvernig finnst ykkur Daysleeper, þið sem hafið heyrt í henni? Ég heyrði lag með þeim í fyrsta skipti svo ég viti um daginn, hét A-eitthvað, mér fannst það bara mjög gott. Þegar diskurinn kemur gefur maður honum svona eitt eða tvö tækifæri.

Drink mate! Get the noise!

Byrjendabassi til sölu (4 álit)

í Hljóðfæri fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ágætur Charvel Precision bassi til sölu, verð í kring um 10.000 en alveg hægt að tala saman um það. Hefur D'Addario Flatwound strengi á í augnablikinu, og er svolítið rispaður en það er ekki alvarlegt. Mjög gott hljóð úr honum. Áhugasamir sendi mér skilaboð eða hringi í síma 868-6898. -Gunnar.

Drink mate! Get the noise!
• Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok