Ég man eftir mjög svipuðu dæmi 1992 eða 1993 þegar ég var einmitt um verlsunarmannahelgi á Höfn. Allt í einu sé ég lítið kríli, svona 1 1/2 - 2 ára, koma hágrátandi labbandi frá einu tjaldinu. Ég var nú sjálf aðeins í glasi, en langt frá því að vera eitthvað ofurölvi. Ég labba með barnið að tjaldinu og hóa svona aðeins fyrir utan áður en ég kíkti inn. Þá lá annað barn þar svona 3-4 ára, steinsofandi, en ekki nokkur fullorðin manneskja, eða bara önnur hræða. Ég hefði kallað í lögregluna ef...