Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Ástarþráhyggja (4 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 1 mánuði
Eitt augnablik af hamingju vakti þráhyggju mína úr djúpum svefni og lokkaði hana inn í svartholið þar sem að ég festist í skugganum af sjálfri mér.

Í nótt. (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum
Ég vaknaði með þér í nótt Lá og hlustaði á þig á meðan þú sast andvaka í sófanum og pældir Ég heyrði þig hugsa um óráðina framtíð og hjartasorg Og þegar þú andvarpaðir uppgefið komst þú inn í draumaveldið mitt og heimurinn varð fallegur aftur á ný

Hræðslupúki! (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum
Innra með þér veistu hið rétta svar, en of erfitt það er að höndla undrun af þessu tagi. Þessvegna læturu spurninguna áfram liggja þar, og lifir í blekkingu um að allt sé í lagi.

Sorg (3 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Sársauki Endalaus Á að vera svo gott en er svo vont Tilfinningar sem vita ekki hvert þær eiga að fara Villtar í gátu lífsins Komast ekki á leiðarenda Hjarta sem hamast ótt Hnúturinn stækkar í maganum Tárin vinna baráttuna

Að týna sér (5 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Alein Áttavillt Leita eftir huggun en finn það hvergi Óttinn grípur fast utan um mig Slær lofið úr mér Næ ekki andanum Panik! Öskra en ekkert heyrist Leggst niður í von um að einhver finni mig..

Ángist! (2 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Blóðið hleypur gegnum líkamann Púlsinn eykst Kreptir hnefar Samanbitnar varir Kökkur í halsinum Hnútur í maganum Reyni að berjast við tárin Barátta sem ég get ekki afstýrt Sit og stari í von um að það hverfi..

Ekki neitt (3 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Ef þú værir hér núna þá myndir þú sjá Mig Ég einsog ég er allir mínir gallar og allt það sem er að vera ég Mig í öllu mínu veldi. Svo sterk svo öflug Kann allt utanlega séð En inni í mér er ég svo lítil sem ekki neitt. Gott að þú ert ekki hérna núna..
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok