Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

FenrirGreyback
FenrirGreyback Notandi síðan fyrir 18 árum, 9 mánuðum 34 ára karlmaður
204 stig

Vandræði með einhverslags Spywear (7 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Ég er í þvílíkum vandræðum, það hefur komist inn á tölvuna hjá mér…alveg nýja, eiginlega ekkert notaða einhver djöfuls spywear. Og ég næ engann veginn að losa hann út…! Þetta heitir popuper.exe og er ekki á leiðinni út. Hafiði einhverja hugmynd um hvernig ég næ þessu út?? Ég er búinn að reyna Spyboot S&D, Norton og Trend Micro. Kveðja, Fenrir Greyback

Cutenews myndir (1 álit)

í Vefsíðugerð fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Ég var að vellta því fyrir mér hvort einhver sem býr yfir þeirri þekkingu að breyta Cutenews í myndaalbúm gæti skrifað fyrir mig smá leiðbeiningar um hvernig á að gera það.

Flottustu síður (6 álit)

í Vefsíðugerð fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Ég var að vellta því fyrir mér hvaða síður ykkur finnst flottastar?

Wordpress? eða hvað? (3 álit)

í Vefsíðugerð fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Ég er aðeins búinn að vera að vellta fyrir mér hvort að einhverjir hérna nota wordpress. Ég sjálfur nota wordpress á bloggið mitt (dansarinn.net/blogg) en ég þekki voða fáa hér heima sem nota þetta. Var bara svona að spá hvort einhverjir notuðu þetta, og ef ekki þá hvað?

Hrærð egg (17 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Hvernig gerir maður hrærð egg eða scrambled eggs?

Auglýsingar líkt og á Mbl.is, sem fylgja (14 álit)

í Vefsíðugerð fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Núna er dáltið um að það séu auglýsingar sem fylgja manni, semsagt ef maður fer neðar á síðu að þá fylgir auglýsing þér. Dæmi um þetta eru: mbl.is leit.is beygla.is Hvernig fer maður að því að gera svona? Fenrir Greyback

WordPress aðstoð (5 álit)

í Vefsíðugerð fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Ég er búinn að vera að reyna að setja upp IImage Gallery plugin á wordpress bloggið mitt. En ég er ekki að fá það til að virka almennilega. Hér eru leiðbeiningar á ensku, sem ég er greinilega ekki alveg að skilja. Getur einhver búið til idiotproof íslenskar leiðbeiningar fyrir mig?

Cutenews - Headlines (13 álit)

í Vefsíðugerð fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Ég er í smá vandræðum með að fá headlines í Cutenews til að virka. Allt birtis og er rosa fínnt en það gerist ekkert ef maður ýtir á þá fyrirsögn sem maður vill skoða nánar, semsagt birtist ekki frétt þegar maður ýtir á viðeigandi fyrirsögn. Hægt að skoða þetta hér Og fyrst ég er búinn að benda ykkur á síðuna, þá hvernig finnst ykkur hönnunin? Það vantar að vísu dálítið af efni inn á hana, en samt sem áður.

Hvað á maður að sjá? (9 álit)

í Kvikmyndir fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Ég er rosalega nýfarinn að spá í kvikmyndir af einhverjum sönnum áhuga en ég veit hinsvegar ekki hvaða myndir er það sem maður á að vera að sjá? Hvað eru svona bestu myndirnar eða myndir sem maður verður að sjá?

Cutenews og myndir (4 álit)

í Vefsíðugerð fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Er nokkur möguleiki á því að láta myndir birtast í CuteNews færslum í samfelldum texta, ekki þannig að það komi texti, bil, mynd, bil og svo aftur texti. Skiljiði? Var að spá hvort það væri ekki til einhver einföld leið til að gera þetta.

Lottó (6 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Getur einhver sagt mér hvar ég get náð í Lottó auglýsingarnar með Jóni Gnarr?

Jón og félagar stálu frá sjálfum sér (33 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Eftir að hafa lesið lauslega yfir þau atriði sem Jón Ásgeir og félagar hans hafa verið ákærðir fyrir get ég ekki annað en spurt sjálfan mig að því hvað sé að! Ég er alls ekki að fara að segja að lögbrot séu réttlætanleg, en ég er hinsvegar að fara að spurja á hverjum lög voru brotin í Baugsmálinu? Þeir sem eiga að vera fórnarlömbin í þessu máli (eins og ég get best skilið) eru þeir sem eiga hlut í Baug en drógu sér ekki fé úr félaginu. Þetta fólk er búið að tapa tugmilljörðum á...

Jón og félagar stálu frá sjálfum sér (10 álit)

í Deiglan fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Eftir að hafa lesið lauslega yfir þau atriði sem Jón Ásgeir og félagar hans hafa verið ákærðir fyrir get ég ekki annað en spurt sjálfan mig að því hvað sé að! Ég er alls ekki að fara að segja að lögbrot séu réttlætanleg, en ég er hinsvegar að fara að spurja á hverjum lög voru brotin í Baugsmálinu? Þeir sem eiga að vera fórnarlömbin í þessu máli (eins og ég get best skilið) eru þeir sem eiga hlut í Baug en drógu sér ekki fé úr félaginu. Þetta fólk er búið að tapa tugmilljörðum á...

Kaffi Hljómalind - aftur (10 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Ég var að vellta því fyrir mér hversu lengi Kaffi Hljómalind hefði dyr sínar opnar í kvöld? Ég var búinn að spurja í Spurt/Svarað á forsíðunni, en það eru engir að lesa það þannig ég tók sénsinn á skítkasti og skellti þessu aftur hér. Fenrir Greyback í kaffihúsafíling

Kaffi Hljómalind (1 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Ekki getur einhver tjáð mér hversu lengi Kaffi Hljómalind er opið í kvöld?

Bréf til J. K. Rowling (20 álit)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Sú hugmynd kom upp hjá Tzipporah eftir einhvern fíflaskap í mér um að skrifa bréf til Rowling og skrifa sem sameinaður hugari. En til þess að þetta verði ennþá skemmtilegra og ennþá meira sameinaður hugari þá ákváðum við að byrja þráð þar sem hver og einn gæti komið með hugmyndir af því sem ætti að vera í bréfinu. Við munum svo senda bréfið til Rowling ásamt einhverju íslensku Harry Potter dóti. Við vonum auðvitað að það sé grundvöllur fyrir þessu, og að þetta geti orðið mjög skemmtilegt. Ég...

Trúmál - Búddismi (48 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Ég var að vellta því fyrir mér hvort að það væri hægt að nálgast einhverjar upplýsingar um búddista á Íslandi, og hvort það væri ekki til einhver “búdda-félög” (veit ekki hvað þetta kallast) hérna á Íslandi. Þá er ég ekki að tala um félög þar sem Asískir innflytjendur hafa stofnað, heldur eitthvað þar sem ég get komið og fræðst eða iðkað búddisma. Fenrir Greyback að pæla í búddisma

Gay Pride 2005 (31 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Ég var að vellta því fyrir mér hvort að einhver ætti myndir af Gay Pride 2005. Þá er ég ekki að tala um myndir af gleðigöngunni, heldur atriðunum sem voru á sviðinu eftir gönguna? Mér þætti mjög gaman ef einhver gæti sennt mér myndir, eða sagt mér hvar ég gæti fundið. Hægt er að senda mér myndir á gaypride@dansarinn.net. Svo fyrst ég er byrjaður að skrifa hérna…hvernig fannst ykkur Gay Pride? Og hvaða atriði fannst ykkur flottast?

Sá þetta á bloggi... (0 álit)

í Húmor fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Afhverju spilar maður ekki körfubolta með börnum? Þau skoppa svo illa

Hvenar verður leifilegt að tala um Half-Blood Prince án þess að þurfa að merkja spoiler? *Spoiler* (13 álit)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Hvenar verða spoiler merkingar afnumdar af 6. bókar korkinum? Var bara að spá í þessu þar sem ég fékk ábendingu um að undirskriftin mín hafi getað skilist sem spoiler, ekkert mál svosem að kippa henni út…eins og ég gerði. En bara að spá í hvenar það er í lagi að hætta að merkja korkana með spoiler aðvörun? Kveðja, Fenrir Greyback, The most vicious werewolf alive

Coldplay (4 álit)

í Popptónlist fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Hvað finnst ykkur um nýju Coldplay plötuna? Ég er alla vega á þeirri skoðun að þetta sé ein besta plata sem ég hef nokkurtíman hlustað á. Þá finnst mér sérstaklega lagið ‘What if’!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok