Sú hugmynd kom upp hjá Tzipporah eftir einhvern fíflaskap í mér um að skrifa bréf til Rowling og skrifa sem sameinaður hugari. En til þess að þetta verði ennþá skemmtilegra og ennþá meira sameinaður hugari þá ákváðum við að byrja þráð þar sem hver og einn gæti komið með hugmyndir af því sem ætti að vera í bréfinu. Við munum svo senda bréfið til Rowling ásamt einhverju íslensku Harry Potter dóti.

Við vonum auðvitað að það sé grundvöllur fyrir þessu, og að þetta geti orðið mjög skemmtilegt.

Ég skrifaði þennan þráð í 6. bókar korkinn þar sem hugmyndirnar um efni bréfsins gætu tengst 6. bókinni