ég trúi ekki að þú sért í alvöru að pirrast yfir þessu. Ég meinti ekkert með því að það ætti að leggja niður fm 957 og kiss fm. Mér finnst þetta bara leiðinlegar stöðvar. (ég hlusta ekki á Xið)
Í fyrsta lagi, hún er að leika. og í öðru lagi, það er orðið alveg fáránlegt hvað þessi þáttur fer mikið í taugarnar á fólki og hvað kvartanir um Silvíu Nótt eru farnir að taka mikið pláss á Huga.
eigi veit ég það svo gjörla, en hitt veit ég að af er annar fóturinn = ég veit það ekki. Það er ekkert tilgangslaust. og af hverju er þetta að pirra þig?
jebb that's about it… ég þarf engin rök, það er ekki eins og ég sé að búast við að hún virkilega verði bönnuð. Mér finnst samt tilgangslaust að hafa tvær nákvæmlega eins stöðvar. Það er ekkert gott í útvarpinu lengur.
eih?? Ég hef ekkert á móti Madonnu og Janis Joplin. Þetta var alveg út úr samhengi hjá þér. Britney er ein heitasta stjarnan núna og það eru ekki bara 5-11 stelpur lengur sem kaupa plöturnar hennar. Hún höfðar samt meira til unga fólksins og það eru aðallega unglingar sem eru inná þessu áhugamáli. Og líka inná öllum Huga. En þér er velkomið að senda inn myndir og greinar um Janis Joplin og Madonnu.
það er alveg jafn gaman að þeim. Fólk kvartar frekar ef það koma aldrei inn nýjar myndir heldur en ef það er alltaf að koma eitthvað nýtt. (þú hefur kannski tekið eftir því) Svo veistu að þær eru þarna ennþá, bara ekki á “forsíðunni”.
mjög mjög satt. Ég skrifaði einhverntíma grein um þetta (gefa skít í tískuna og klæðast eins og maður vill o.s.fr.), en ég er ekki beint stolt af henni lengur. Mér er eiginlega nákvæmlega sama núna í hverju fólk er.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..