David og Victoria Beckham eru á landinu um þessar mundir. Kappinn er þó ekki hér í knattspyrnuerindum, heldur fékk Baugur Group hann til að koma hingað vegna tískufatnaðar sem tengjast honum.

Ekki slæmt að fá þennan knattspyrnusnilling í heimsókn. Hann mun vera á flottu herbergi á Hótel 101 í miðbænum en það er ekki víst hvað hann verður lengi á landinu.