Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Blublu
Blublu Notandi frá fornöld 41 ára karlmaður
236 stig

Engöngu eða eingöngu? (6 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Það sama og titillinn segir. Ég þarf að vita hvort það er “engöngu” eða “eingöngu”. Ég hélt að það væri hið síðarnefnda en svo var einhver kerling um daginn að segja mér að það væri hinsegin. Mig langar bara að vita hvort er rétt?

Líf og dauði graskers (0 álit)

í Forsíða (gamla) fyrir 17 árum, 7 mánuðum
http://www.youtube.com/watch?v=Q-1aui-wluE

Svefngalsi 2 (0 álit)

í Forsíða (gamla) fyrir 17 árum, 7 mánuðum
http://video.google.com/videoplay?docid=-6854340286505358466

Svefngalsi 3 (0 álit)

í Forsíða (gamla) fyrir 17 árum, 7 mánuðum
http://video.google.com/videoplay?docid=121059282733042674

Svefngalsi 1 (0 álit)

í Forsíða (gamla) fyrir 17 árum, 7 mánuðum
http://video.google.com/videoplay?docid=-7225060983786084191

Í gamla daga voru hlutirnir öðruvísi (sígarettuauglýsing) (0 álit)

í Forsíða (gamla) fyrir 17 árum, 7 mánuðum
http://www.youtube.com/watch?v=IjxVBUSkrr0

Franskar kartöflur (11 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Ég var alveg geðveikt svangur áðan þannig að ég fór í Aktu Taktu og fékk mér tvo ostborgara og stóran skammt af frönskum. Ég rétt náði að koma niður borgurunum tveimur en ég fattaði ekki hvað þessir frönskuskammtar eru RISAstsórir. Núna sit uppi með heilt fjall af frönskum sem ég veit ekkert hvað ég á að gera við! Sjitt! Ég held ég fái mér bara lítinn skammt af frönskum næst.

Nintendo DS leigur (15 álit)

í Hugi fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Halló, ég var að fá mér DS lite, sem er frábær græja. En ég nenni ekki að eyða 5000 kalli í hvern einasta leik sem mig langar að spila þannig að ég þarf að vita hvar er best að leigja DS leiki og helst þá hvað það kostar líka.

pepsi.is lokað vegna misnotkunnar (37 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Jæja ég var í makindum mínum að reyna að taka þátt í þessum Pepsi leik (slá inn kóða sem birtist á flöskunum) en svo er búið að loka fyrir vegna misnotkunnar! Helvítis krakkafífl að reyna að hakka síðuna! Og heimsku fífl hjá Pepsi að finna ekki upp leið til að stoppa þetta án þess að stinga 99.999% af öllum sem láta sig þetta eitthvað varða í bakið. Argh! Og áður en þið segið það þá vil ég segja að SMS er heimsk hæg aðferð til samskipta og ég nenni ekki að nota það.

Sexhundraðasti vinurinn (13 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Mig langaði bara að tilkynna að hugari númer 600 til að bæta mér á vinalistann sinn er enginn annar en nikkonomeus. Hvernig fæ ég fólk til að bæta mér á vinalistann? Það er leyndarmál sem enginn mun nokkurn tíman fá að vita. Takk fyrir, og haldið endilega áfram að smella á undirskriftina mína.

Litlar rauðar doppur á húsveggjum (23 álit)

í Hugi fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Hvað heita aftur þessar pínulitlu rauðu pöddur sem maður finnur oft í fjöru og á húsveggjum? Þær eru svo litlar að þær eru eins og rauðar doppur sem hreifast.

Vantar: Tetris fyrir GameBoy (13 álit)

í Leikjatölvur fyrir 17 árum, 11 mánuðum
Ég var að velta fyrir mér hvort einhver ætti gamlan Tetris leik fyrir GameBoy (þessa eldgömlu). Ekki verra ef tölva fylgir með (skjárinn á mínum er skemmdur…) Eða jafnvel GameBoy Advance með Tetris leik, það væri líka fínt.

lag ... hahaha (8 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Jæja, nú er komið að mér að spyrja um lag. Það er lagið sem var í kynningunni á Borgarholtsskóla í Gettu Betur áðan… það er enginn texti í því og það hljómar einhvernvegin du du du du di di di du di di di di di di di di .. og svo framvegis. Frekar asnalegt lag og ekkert spennandi, ég hef bara verið einhvernvegin með þetta á heilanum öðru hverju frá því ég var lítill og mig langar að vita hvað þetta heitir, ef það heitir þá eitthvað (gæti trúað að nafnið sé “langur lyftutónlistabútur #3511”).

Hurðin á Hlemm (11 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Afsakið orðbragðið en… Hvað er helvísis hurðafjandinn búinn að bera bilaður lengi? Ég er orðinn þreyttur á því að þurfa alltaf að labba 10 metra aukalega bara vegna þess að það er ekki búið að laga þennan hurðaræfil. Afsakið, ég fann ekkert betra til að röfla yfir því dagurinn er búinn að vera svo frábær. Njótið kvöldsins. :)

Ógeðslegt nammi (5 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Ég þoli ekki þegar maður kaupir sér nammi, og kemst að því eftir á að það er ÓGEÐSLEGT á bragðið. Í gær keypti ég eitthvern salt lakkrís í Bónus, og var að smakka hann áðan. Þetta er ÓGEÐSLEGUR HORBJÓÐUR!!! Ekki kaupa saltlakkrís í Bónus sem er í rauðum og bláum poka. Ég hlýt að hafa óvart keypt eitthvað sem á að nota með öðru í einhvers konar undarlega matargerð því það getur ENGINN borðað svona ógeð. Ooooojjj!!!

Nota tölvuskjáinn fyrir leikjatölvuna (9 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Hey, ég er með rosalega skemmtilega Sega Saturn tölvu, en ég nenni ekki að burðast með sjónvarp í herberginu mínu. Þannig að ég hugsaði hey, ég er þegar með skjá, get ég ekki bara notað tölvuskjáinn? Hver er besta leiðin til þess að gera þetta? Tölvan tengist í sjónvarp með svona SCART tengi eða hvað það heitir. Æi þið vitið.

Vantar PS2 (0 álit)

í Leikjatölvur fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Er einhver snillingur til í að selja mér Playstation 2? Frábært ef hann kæmi með MOD-kubbi í.

Frjósa í 2. persónu (10 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Hvernig er aftur sögnin að frjósa í annarri persónu? Ég - frýs þú - frýst? frosnar? h/h/þ - frýs Afsakið ef þetta er rosalega heimskuleg spurning, ég bara verð að fá þetta á hreint. (Ekki það að Hugi sé eitthvað góður staður til að spyrja um svona.)

Svali svali ævintýrasvali (5 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Kann einhver þetta lag í svala auglýsingunni? Það endar svona “svali, svali, ævintýrasvali”. Ég er með þetta á heilanum og verð að fá að vita þetta!

Doukutsu Monogatari (Cave Story) (21 álit)

í Tölvuleikir fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Bara til að koma því á hreint strax, þá er þetta einn besti leikur sem ég hef nokkurn tíman prófað. Þar hafið þið það. Þessi leikur er SVO góður að ég ákvað að skrifa grein um hann. Í Doukutsu Monogatari (þýðist á ensku sem “Cave Story”) spilar maður lítið vélmenni sem hefur misst minnið. Maður ferðast um og spilar út söguna í leiknum, svipað og í klassískum japönskum RPG leikjum. Þetta er annars tvívíður platform leikur með nokkrum RPG og Metroid eiginleikum. Til dæmis uppfærir maður vopnið...

Nokia 3510i leikir sem sökka ekki (0 álit)

í Farsímar fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Ég var að velta því fyrir mér hvort það séu til einhverjir leikir fyrir þennan síma sem eru ekki algjört sorp. Og hvort það sé svo hægt að koma þeim í símann án mikilla vandræða. Leikirnir sem ég er með núna eru: Racket (sýgur geðveikt mikið) Bowling (sýgir rosalega mikið) Backgammon (sýgur hræðilega mikið) Sky Diver (sorgleg afsökun fyrir leik) Mig langar bara í Snake eða Tetris eða eitthvað svoleiðis sem er hægt að hanga í í strætóskýlum og eitthvað. Ekki svona sorglegt rusl.

Síðasti pósturinn (5 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Þetta er örugglega síðasti pósturinn áður en hugi.is fer niður (til að taka afrit).

Akstursmat (7 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Hvaða fífli datt eiginlega í hug að láta mann fara aftur í ökutíma 2 árum eftir að maður er kominn með ökuréttindi? Ég þarf núna að panta ökutíma, og læra að aka eftir “ökukennarastöðlum” aftur. Helvítis bull!

lýti á Huga (13 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Allt í lagi, ég get vel skilið að fólk sé of vitlaust til að skrifa sæmilega rétt. Ég er einn af þessum fáu sem eru ekki með heilaskaða, þannig að ég get oftast skrifað næstum því sæmilega. En viljið þið vinsamlegast reyna allavega að skrifa orðið “líta” með í en ekki ý. Lýti er allt annað orð með allt aðra merkingu. Merkilegt samt hvað það er viðeigandi. Ég fer ekki fram á mikið, en ég veit að það mun ekkert lagast. Mig langaði bara til þess að nöldra dálítið.

HL2 Steam FOKK (16 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Djöfull er ég pirraður á þessi Half-Life 2 Steam KJAFTÆÐI!!! Ég keypti Half-Life 2 í gær og allt í góðu með það, og leikurinn sjálfur er frábær. En það er bara eitt sem spillir svolítið mikið fyrir. Og það er þetta Steam bull. Það er ekki hægt að spila leikinn án þess að installa Steam. Það er ekki hægt að spila leikinn í singleplayer án þess að hafa internet tengingu. Gott og vel. Ég vissi af þessu áður og var alveg búinn að sætta mig við það (enda var Valve ekkert að leyna þessu fyrir...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok