Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Applepie
Applepie Notandi síðan fyrir 19 árum, 11 mánuðum 176 stig
;D

Kitchen and bath (4 álit)

í The Sims fyrir 16 árum
Veit einhver hvenær þessi stuff pakki kemur út? Eða er hann kannski kominn?

Framþungur (5 álit)

í Hestar fyrir 16 árum
Hæ! Ég var að fá hest sem er mjög framþungur á tölti. Getið þið bent mér á eitthvað “einfalt” sem hægt er að gera til að bæta úr þessu? Hann er líka pínu taumstífur en þetta fylgist örugglega að! Það væri frábært ef einhver hérna hefði reynslu af að laga svona og gæti gefið mér góð ráð! ;D

Lesa hraðar? (12 álit)

í Skóli fyrir 16 árum
Getur einhver gefið mér góð tips um það hvernig maður getur lesið hraðar? Ég er að fara í samræmdu prófin og á eftir að lesa nokkrar bækur en er bara svo rooosalega lengi að lesa og ef ég reyni að lesa hraðar þá tek ég miklu minna eftir því sem ég er að lesa! :/ Það væri frábært ef einhver gæti komið með ráð fyrir mig!

Vatnsdrykkja? (35 álit)

í Heilsa fyrir 16 árum, 1 mánuði
Ég hef alltaf drukkið voða lítið vatn yfir daginn nema bara á æfingum þegar ég verð mjög þyrst! Þetta er alls ekki gott fyrir líkamann en einhverra hluta vegna get ég ekki drukkið vatn úr glasi! ;S Ég ætla að reyna að bæta úr þessu og var að spá í hvort það sé ekki í lagi að drekka djús í staðinn? (sem maður blandar 1/8 í vatn) Maður er alveg að drekka sama vatnið, eða er það ekki?!

Merkja hettupeysur? (13 álit)

í Tíska & útlit fyrir 16 árum, 4 mánuðum
Mér datt í hug að spurja hérna.. En ég er að sjá um hóp af krökkum í félagi og langar rosalega til að merkja hettupeysur fyrir þau með félagsmerki, nafni og þannig. Ég er að vona að einhver geti sagt mér hvar sé hægt að fá þetta ódýrast og hvernig reynslu hafið þið af því?

Hvaða þáttur? (3 álit)

í Gamanþættir fyrir 16 árum, 4 mánuðum
Ég ætla að bæta vð einni týbiskri spurningar um í hvaða þætti hvað gerðist! ;P Í hvaða þætti & seríu fór Ross í brúnkusprautun & fékk allt á framhliðina? xD langar að sjá þennan þátt aftur!

Venja ketti saman? (4 álit)

í Kettir fyrir 16 árum, 4 mánuðum
Hefur einhver hérna reynslu af því að venja ketti saman? og hvað gæti það tekið langan tíma? Er með eina læðu og það gæti komið kettlingur inná heimilið tímabundið (ca. 2vikur) og mér þætti best ef þau gætu kynnst vel svo þau þurfi ekki alltaf að vera í sitthvoru lagi!

Hvaða í hvaða seríum? (7 álit)

í Gamanþættir fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Í hvaða seríu er thanksgiving þátturinn þar sem Joey ætlar að reyna að klára stóran kalkún fær svo óléttubuxur frá Pheobe lánaðar? & þátturinn með Gladys listaverkinu hennar Pheobe sem öllum fannst svo ljótt?

Aukahlutir á blog.central? (1 álit)

í Blogg fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Veit einhver hvað er að aukahlutunum á blog.central? þeir eru búnir að vera í ólagi í einhvern tíma! Ég finn hvergi netfang til að geta sent inn ábendingu til blog.central stjóranna um þetta.. :S Ég er að gefast upp á þessu kerfi!

Dýranýðsla! (8 álit)

í Hestar fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Ég rakst á eitt myndband frá ródeókeppnum sem snúast bara um að nýðast á bjargarlausum hestum og dýrum sem geta ekkert gert sér til bjargar/varnar! Svo er þetta sýnt fyrir fullri stúku af fólki! Get ekki ýminda mér hversu siðblint fólk þarf að vera til að geta fundist áhorfshæft! Ég átti mjög erfitt með að horfa upp á þetta og skil ekki hvernig fólk getur verið svona tilfinningalaust og illt gagnvart dýrum! Svo er verið að tala um harkalega meðferð á íslenskum hestum?...

Besta serían? (16 álit)

í Gamanþættir fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Ég ætla að kaupa mér eitt stykki friends seríu og langar að vita hvaða sería finnst ykkur skemmtilegust/best? (Veit að allar eru frábærar ;P)

Ólétt í draumi? (2 álit)

í Dulspeki fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Veit einhver hvað það getur þýtt að vera ólétt í draumi? Ég á draumaráðningabók en það stendur ekkert um það í henni..:/ Mig dreymdi nenfilega að ég væri ólétt, -vissi ekki hvernig það hefði gerst, -var ekki búin að segja neinum frá því nema mömmu, -átti að eiga daginn eftir, -var mjög kvíðin því mig langaði ekkert í barn, -langaði að segja vinkonum mínum frá því en gerði það ekki! Getur þetta þýtt eitthvað? Þið eruð frábær ef þið getið komið með eitthvað! ;D

Hlýrabolir?? (13 álit)

í Tíska & útlit fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Hvar fær maður síðan, venjulegan hlýrabol, úr ágætis efni sem kostar ekki 3000kr.? Hef séð boli frá sparkz sem eru hálf gegnsæir, úr lélegu efni en kostar samt 2990! Bara rugl!

Nöfn! (4 álit)

í The Sims fyrir 16 árum, 6 mánuðum
Getiði hjálpað mér að finna spænsk/suður-amerísk nöfn fyrir simsa! :D Vantar bæði á karl og konu og fjölskyldu nöfn! :)

Ólétt Teen? (6 álit)

í The Sims fyrir 16 árum, 6 mánuðum
Hæ, getur einhver sagt mér hvernig er hægt að láta teen verða ólétt og gera woohoo?! Er ekki hægt að gera annaðhvort svindl eða dl. hack? Myndi það fara illa með leikinn?

Teen Style Stuff? (3 álit)

í The Sims fyrir 16 árum, 6 mánuðum
Ein klassísk spurnig! ;P Hvenær kemur leikurinn út á landinu? & veit einhver hvenær hann gæti verið væntanlegur á Bretlandi? (fann það ekki á sims síðunni)

Dl. myndavél? (5 álit)

í The Sims fyrir 16 árum, 6 mánuðum
Er einhverstaðar hægt að dl. Career Rewards myndavélinni? Ég er búin að leita á modthesims2 en finn ekki! :/ Ég vil samt ekki nota unlock career rewards svindlið vil hels downloada.. :) Vonandi getur einhver hjálpað! ;p

Topshop (10 álit)

í Tíska & útlit fyrir 16 árum, 6 mánuðum
Veit einhver hvort það sé búið að opna Topshop í Kringlunni? Ef ekki veit einhver ca. hvenær það á að opna? ;P

Member á TSR? (5 álit)

í The Sims fyrir 16 árum, 7 mánuðum
Er einhver hérna member á http://www.thesimsresource.com/? Mig langar til að vera member en ég veit ekkert hvernig það virkar eða hvort það kosti eitthvað..:$

Ilmvatn? (34 álit)

í Tíska & útlit fyrir 16 árum, 7 mánuðum
Ég er að fara til útlanda bráðum & langar að kaupa nýtt ilmvatn í fríhöfninni en ég bara get aldrei valið mér! ;S Eru einhverjir frískir & góðir ilmir sem þið mælið með? ;D [Ég á eitt frá Puma og langar í e-ð nýtt.]

Geyma hús? (5 álit)

í The Sims fyrir 16 árum, 7 mánuðum
Ég er orðin svo leið á Sims hjá mér að mig langar til að eyða leiknum út & byrja allt upp á nýtt! ;D -En ég er ekki alveg að tíma því út af öllu sem ég hef gert í body-shop & sum húsin sem ég hef byggt gæti ég aldrei gert aftur! ;/ Þannig að ég var að pæla hvort að það sé hægt að gera e-ð þannig það sé hægt að hafa húsin & bodyshop dótið þegar ég er búin að setja leikinn inn aftur?

Gallabuxur?? (9 álit)

í Tíska & útlit fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Ég er stelpa & á heima úti á landi. Mig langar alveg ótrúlega mikið í nýjar gallabuxur & er að fara í bæinn á morgun! :) Getiði þá sagt mér hvernig gallabuxur eru vinsælastar & í tísku í dag & hvar er best að kaupa þær? ;D (btw þá langar mig ekki í alltof dýrar buxur..)

Verð & lengd (3 álit)

í Harry Potter fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Vitið þið hvað bókin á að kosta & hvar hún gæti verið ódýrust? & hvað verður hún löng? (í bls.)

Þýðingar á orðum! (15 álit)

í Harry Potter fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Ég ætla að lesa nýjustu bókina á ensku í þetta skiptið en ég hef lesið allar hinar á íslensku. En ég hef bara áhyggjur af því að ég skilji ekki sum orð sem tilheyra bara Harry Potter bókunum! (ef þið skiljið) t.d. vitsuga o.fl! Eru einhverjir til í að koma með nokkrar nytsamlegar þýðingar á ensku t.d. vitsuga, helkross, Spámannstíðindi og fleira sem gæti komið að góðum notum!

Myndbönd í blogg?? (18 álit)

í Blogg fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Getur einhver sagt mér hvernig er hægt að setja myndband af youtube í blogg!? Ég hef prófað að taka html kóðann og setja inn en það kemur bara hvítur kassi með rauðu x-i í horninu.. ;/
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok