Geturðu lýst hljóðinu í chinainum? Er hann trashy? Hávær? Mjúkur? Mikið sustain? o.s.frv. Finn hann ekki á síðunni þeirra. Er á Akureyri (og geri ráð fyrir því að þú sért í Rvk) en ég kem reglulega suður.
Ánægður með tónlistarsmekkinn þinn. Er sjálfur brjálaður The Mars Volta fan og kolféll alveg fyrir þessu Hiromi Uehara dæmi. Verðið að koma svo til Akureyrar þegar þetta er komið í gang. Þekkirðu eitthvað fleira í þessum dúr sem þú getur bent mér á?
Hvar ertu á landinu? Langar í cymbal arminn en er á Akureyri. Er þetta ekki annars svona: http://www.daddyosmusicshack.com/product_images/music/Gibraltar/SCGCA~hqw.jpg
Ég er búinn að vera að dunda mér við það að læra á píanó undanfarið og netið hefur hjálpað mér alveg gífurlega í þeim efnum. Hér eru nokkrar góðar síður: Hér geturðu séð alla hljóma og skala http://www.pianoworld.com/fun/vpc/piano_chords.htm Þetta er mjög góð síða til að skilja hvernig þetta virkar allt saman http://musictheory.net/ Hér sérðu hvernig nóturnar virka http://www.piano-lessons-info.com/read-piano-notes.html Og hér er gæji (reyndar leiðinlegri en allt) sem er með tuttugu 20 min...
Þetta er alls ekkert asnaleg hugsun. Mér finnst nánast alltaf gaman að fara á tónleika þótt að ég sé kannski ekki ægilegur aðdáandi hljómsveitarinnar. Þetta er bara þannig með marga sem lifa fyrir tónlist að þeir fara á eins marga tónleika og þeir geta því það er oftast gaman að sjá fólk spila live. Maður upplifir tónlistina bara allt öðruvísi þegar maður horfir á mennina spila.
Ég er sammála um að Jon sé frábær og stór partur af þeirri staðreynd að The Mars Volta gáfu út svona góðar plötur. Ég var bara að hafa eftir Omar að Jon hefði verið búinn að missa áhugann og á tónleikum þegar þeir voru að djamma þá dró hann stemminguna niður. Þess vegna er ég ánægður með að þeir skiptu um trommara. Ég held bara með Pridgen að hann þarf að aðlagast tónlistinni og venjast því að vera ekki alltaf með sóló og brjálaða takta. Flottustu trommurnar eru ekkert alltaf þær hröðustu....
Í fyrsta lagi þá er nú bara nokkurn veginn ómögulegt að gera betri plötur heldur en Deloused og Frances þannig að það er ekki alltaf hægt að miða við þær. Ég vil heldur ekki fá “Jon” Theodore aftur því Omar var búinn að segja að hann hefði dregið stemminguna í hljómsveitinni gífurlega niður og verið búinn að missa allan áhuga. En já ég er sammála þér með það að Octa eru vonbrigði. Það er eins og Omar hafi klárað öll frumlegheitin í sólóprojectin sín og síðan á þessari plötu þá er söngurinn...
Ég var niðri í Tónabúð á Akureyri í dag og hann sagði að það væri að koma sending af bæði Remo og Evans á næstu dögum. Takk fyrir ábendingarnar, eiginlega akkúrat það sem mér leist best á af því sem ég skoðaði á síðunni hjá Evans.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..