Snilldar vel gert :) Það voru dregnir 4, 6 ára jaxlar úr mér, var að vísu svæfður, en vaknaði eins og brjálæðingur á kleppi, lamdi allt og alla, eða það var mér sagt. Ég trúi þeim hinsvegar ekki. (sama var sagt þegar ég lenti fyrir strætó 9 ára gamall að ég hafi vaknað eins og brjálæðingur.) SVo ældi ég blóði þrjá daga eftir, svo frábært var það, og svo vill fjölskyldan alltaf hafa eitthvað frábært í matinn eftir Teinastrekkingu hjá mér (og já þá get ég ekkert borðað). En frábærlega skrifað...