Jæja, nú er loksins komið að því, Patch 1.03 kominn út.
Það er margt sem búið er að laga með þessum patchi, en helstu atriðin eru þó að nú geturðu tekið not á 6 stafa clan-nafn fyrir framan nick-ið þitt innan leiksins, þú drepst ekki ef þú rekst óvart utan í bíl á lítilli ferð og einnig komið í veg fyrir statpadding ásamt svo mörgu öðru. Ekki má gleyma svo nýja(?) map-inu, Wake 2007. ;)

Ég veit að fólk er óþolinmótt á að ná í patch-inn svo ég skal ekki tefja ykkur mikið lengur :)
Hægt er að ná í gripinn á http://largedownloads.ea.com/pub/patches/bf2_patch_103.exe
Patch-inn er um 170MB.

Kveðja
[89th]Maj.FatJoe