Ég held að það sé satt hja þér að maður þurfi að vera 16 til að geta afgreitt, þó að flestar búðir vilji krakka 18 og eldri. Síðan má líka benda á það að ef krakki sem er ekki sakhæfur (undir 15) er að vinna í búð og stelur úr henni eða eitthvað, þá er náttúrulega ekki hægt að kæra krakkann. Varðandi það að selja tóbak, þá eru sumar búðir með leyfi til að krakkar undir 18 selji sígarettur. En flestar búðir hafa ekki það leyfi en samt selja krakkar undir 18 tóbak.