Ég “stal” þessari grein af www.nulleinn.is, vefur sem rúlar

Tveir eftirlifandi meðlimir Nirvana hafa farið fram á að Courtney Love, fyrrum eiginkona Kurt Cobain, sæti geðrannsóknar. David Grohl og Krist Novoselic segja Courtney vera eigingjarna og óstýrláta. Þeir standa nú í málaferlum við hana útaf höfundarrétti á lögum Nirvana. Meira en 120 tímar eru til af óútgefnu efni sveitarinnar en nýlegur dómsúrskurður gefur Courtney leyfi til að koma í veg fyrir frekari útgáfu. Courtney eignaðist hlut Kobains í útgáfufyrirtæki Nirvana, Limited Liability Company, þegar hann lést árið 1994. Nú vill hún að fyrirtækinu verði lokað. Grohl og Novoselic segja hana ekki vera færa um að taka þátt í rekstri félagsins. Þeir vilja að hún gangist undir geðrannsókn þann 1. júní.


Ég er algjörlega sammála þessu, courtney love er Yoko Ono nútímans og má hún stikna í neðra fyrir allt sem hún hefur gert á kostnað Kurts og Nirvana (þar á meðal drað hún Kurt). Ég segi bara eitt: Á hæli með tíkina!!!!