NOKKRIR strákar hér í Vík í Mýrdal, sem hjóla á motocrosshjólum, eru mjög ósáttir við hestamenn. Ætla að taka það fram að ég hef sjálfur verið á hrossum frá árinu 2001-2005. Reiðskólinn í Vík í Mýrdal var haldinn nýlega. Það fór ekki fram hjá nokkrum manni hér á staðnum að hestamenn héldu að þeir ættu bara Vík þessa viku. Hestar fóru í gegnum þorpið í staðinn fyrir að fara bara hefðbundna reiðstíginn þeirra “varnargarðinn”, svo er greinilegt að skemmdir hafa verið unnar á grínum á golfvellinum af völdum hrossa,

Að ég best veit þá var enginn látin vita að hross hefðu farið yfir grínin á golfvellinum, en ég held að það sé af því að hestamenn telji að þeir megi allt sem þeir vilja. Svo á nokkrum stöðum hérna í kringum þorpið og inni í því líka eru komin mjög ljót för í tún eftir hrossin. Ég skil bara ekki af hverju þeir halda að þeir megi allt. Skítur úr hrossunum er núna út um allar trissur, t.d. á gangstéttinni sem liggur meðfram þjóðvegi 1. Er þetta í lagi?

Allavega, nú snúum við okkur að “motocrossliðinu”. Ég sjálfur hef verið á hjóli. Við virtum það að drepa á hjólum um leið og við sáum hross. Við virtum það að vera ekki að spæna upp tún og skíta á göturnar. Við virðum það að fara stystu leið út úr bænum því það er það eina sem við megum! Ef okkur dytti í hug að fara að keyra innanbæjar yrðum við kærðir á mínútunni sem við kveiktum á hjólinu. Og eru til mörg dæmi um að menn heyri bara hljóð í crosshjólunum og þeir hringja á lögregluna. (Stundum eru menn ekki með eina ástæðu til að hringja, Jú þeir heyra hljóð.) Ég sjálfur er orðinn mjög svo þreyttur á yfirgangssemi hestamanna. Þeir mega allt og við ekki neitt. Ég veit það að hjólin eru skráð torfærutæki. Þau megi keyra inni í braut en ekki neins staðar annars staðar. Ég geri mér fulla grein fyrir því að það eru læti og verða alltaf læti í kringum motocrosshjól. En það er kostur við þau. Við getum keyrt þau án þess að það fari strá úr grasi, sem er eitthvað annað en hross. Hross eru á bilinu 200-400 kíló, og þau munu spæna eða gera djúpar holur í jörðina. Og veit ég líka að hross hafa gert mun meiri varanlegan skaða en mótorhjól í utanvegaakstri uppi á hálendi. En þetta er staðreynd. Þú getur keyrt mótorhjól án þess að spæna en getur ekki setið hest án þess að valda eyðileggingu. Og ætla ég að vona að einhverjir motocrossmenn og hestamenn lesi þetta og hugsi sinn gang.

P.s.: Ég veit að það eru til menn í mótorsportinu sem haga sér eins og fífl, og fólk á hrossum sem notar einungis reiðvegi. En það eru mun fleiri dæmi um að hross eyðileggi en crosshjól, En af því að motocrosshjól er hávært er því haldið í umræðunni en ekki hrossum.

.


Kjartan Steinar Jónsson


FÓLK VIÐ SKULUM FARA AÐ GERA EITTHVAÐ Í OKKAR MÁLUM. BERJUMST FYRIR OKKAR MOTORSPORTI!!!!!
BMW 318 E30 89'“SWEET”