Meshuggah - Catch ThirtyThree Þegar kemur að Meshuggah worship þá er ég vissulega alveg hrottalegur newbie, en ég er ekki frá því að þessi plata sé ein besta þungarokkplata sem gerð hefur verið.

Fyrir þá sem hafa ekki tékkað á þessu þá er það alveg skilyrði ef fólk er eins og ég og finnst gaman að hlusta á “hálf-stefnulausa” tónlist.

Platan er í sjálfri sér eitt 47 mínútna lag, en það er bæði hægt og nokkuð auðvelt að meta hvert lag fyrir sig. Hér eru dæmi af þessu meistaraverki:

[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=hfcF5RkCFO0
Ekki allur þríleikurinn eins og hann er bestur, en sá þríleikur innheldur þá lögin Mind's Mirrors, In Death is Life og In Death is Death.

[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=weiXdYGuawY&feature=video_response
Síðasta lagið á plötunni, alveg hreint rosalegur millikaflinn (frá 1:00)

[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=sMmsVxn8d4k&feature=related
In Death is Life/In Death is Death blandan live, ég er ekki frá því að þetta sé besta live video sem ég hef nokkurn tímann séð.

Nú veit ég að það eru flestir búnir að tékka á þessum drengjum, en ég er einn af þeim sem hlustaði eitthvað smá á þá og bara fílaði ekki neitt…ÞAR TIL ég settist niður og hlustaði á Catch ThirtyThree frá A-S, og það má segja að ég hafa fattað snilldina í þessari tónlist.

Gefið ykkur sjálfum ykkur klukkustund og metið þetta snilldarverk.