Scars on Broadway Einhver hlustað eitthvað á þetta?
Rakst á þetta þegar ég var að lesa eitthvað um SOAD á Wiki.

Þetta er semsagt band sem var stofnað af gítar- og trommuleikara(urum?) System of a Down.
Ég er ekkert mikill SOAD fan en ég verð að segja að mér líst alveg ágætlega á þetta.

Þeir hafa gefið út eina plötu sem ber nafnið Scars on Broadway. Lög sem ég hef pikkað yfir önnur eru m.a. World Long Gone, Babylon, They Say, Stoner Hate, Insane og Serious.