Yep

Eftirfarandi bönd hafa bæst við á síðustu dögum:

KATAKLYSM, EQUILIBRIUM, ALICE COOPER, CRUCIFIED BARBARA, LAKE OF TEARS

Aðalbjörn Tryggva, söngvari Sólstafa, hefur líka tilkynnt eftirfarandi: “Þann 28. Desember má búast við staðfestingu á íslensku bandi á Wacken ´10 !” og það er ekki í tengslum við Metal Battle, sem þýðir að tvær íslenskar sveitir verða á Wacken í ár!

Heildarlineuppið er sem hér segir eins og staðan er í dag (og fullt af böndum enn eftir að bætast við):

1349 - Black Metal af bestu sort.
ALICE COOPER - Meistari shock rokksins. Forfaðir Marylin Manson og allra hinna eftirlíkinganna!
AMORPHIS - Ein allra fremsta metal sveit Finnlands. Hands down.
ARCH ENEMY - Sænsku melodeath meistararnir með Angelu Gossow í öskrunum.
CALIBAN - Eitt stærsta metalcore band Þýskalands.
CANNIBAL CORPSE - Legends of Death Metal. Íslandsvinir með meiru.
CORVUS CORAX - Epískt folk metal frá Þýskalandi. Setja alltaf risa-show á laggirnar á Wacken.
CRUCIFIED BARBARA - Sveit skipuð bara kvenfólki frá Svíþjóð. Metal with balls! (pun intended)
DESPISED ICON - Deathcore frá Kanada.
DIE APOKALYPTISCHEN REITER - Þýskt band með þýskum textum. Power metall með epískum áhrifum.
EDGUY - Eitt fremsta power metal band Þýskalands.
EKTOMORF - Thrash frá Ungverjalandi.
ENDSTILLE - Þýskt Black Metal. Með nýjan söngvara í farteskinu.
EQUILIBRIUM - Mjög öflugur Pagan/folk metall frá Þýskalandi.
GHOST BRIGADE - Doom/sludge frá Finnlandi sem er að gera allt vitlaust.
GRAVE DIGGER - Gamlar þýskar risaeðlur í Heavy Metalnum. Sjaldan verið eins hressir og í dag.
IMMORTAL - Meistarar norska blackmetalsins. Þarf að segja meira?
IRON MAIDEN - Breska stálið… Voru algjörlega frábærir á Wacken 2008.
KAMPFAR - Black metal frá Norge.
KATAKLYSM - Dauðarokk frá Kanada.
LAKE OF TEARS - Sænskur gothic metall
MÖTLEY CRÜE - Kóngar bandaríska sleeze metalsins mæta á svæðið. Dr. Feelgood mætir á svæðið einnig.
PRIMAL FEAR - Fyrrum söngvari Gamma Ray, Ralph Scheepers hér með sína power metal sveit.
ORDEN OGAN - Sjóræningametall í anda Running Wild.
SLAYER! - Kings of Thrash Metal. Einhverjar spurningar?
STRATOVARIUS - Stærsta power metal band Finnlands með 12 studio plötur á bakvið sig.
THE DEVIL'S BLOOD - Satanískir ritualar og psycadelic rokk-metall.
TORFROCK - Þýskir djammrokkarar.
U.D.O. - Gamli jálkurinn úr Accept, Udo Dirkschneider, hér á ferðinni með hljómsveit sína á bakvið sig.
W.A.S.P. - Blackie Lawless og co. Meistarar shock metalsins.
Resting Mind concerts