Gripurinn mun kallast “Skyforger” og mun koma út í Evrópu 29. maí, eitthvað síðar í BNA (ekki búið að tilkynna útgáfudag). Það er líka búið að birta covermyndina, hana má sjá hér. Því miður engin tóndæmi ennþá, en ég skal láta vita hér þegar þau koma (ef þið hafið áhuga).

Ég verð að segja að ég hlakka ansi mikið til, þar sem Amorphis er ein af þessum sveitum sem batna með hverri plötunni. Eclipse var a.m.k. fantagóð og Silent Waters enn betri, bara spurning hvort þeir halda dampi á þessari :)
Peace through love, understanding and superior firepower.