JÁ, ÞÚ LAST RÉTT - Það er komið á hreint, The Black Dahlia Murder eru væntanlegir á klakann og spila hér fimmtudagskvöldið 15. janúar

Verið er að ganga frá staðsetningarmálum sem og upphitunarböndum, en þetta verður rækilega auglýst þegar nær dregur með öllum tilheyrandi upplýsingum.

Þetta eru tónleikar sem ENGINN alvöru metalhaus getur látið framhjá sér fara. Þeir hafa verið að túra með Children of Bodom undanfarið og þetta band er rísandi stjarna í metalheiminum um þessar mundir, á því liggur ekki nokkur einasti vafi.

Ég kem með update í þennan þráð um leið og eitthvað nýtt kemur á daginn

Þeir sem ekki þekkja til þessara snillinga, vil ég mæla eindregið með því að þið kynnið ykkur þetta klikkaða band, EKKI SEINNA EN STRAX !

MySpace: http://www.myspace.com/blackdahliamurder

Nokkur myndbönd á YouTube:
http://www.youtube.com/watch?v=kSiuE54fl48
http://www.youtube.com/watch?v=lIKuXnzuYGs
http://www.youtube.com/watch?v=DosW2CAKBqI
http://www.youtube.com/watch?v=3vRIJ4Epgn8