Nú er svo mál með vexti að hljómsveitabolirnir sem ég keypti í á Wacken 2005 eru farnir að verða ansi slitnir af stífri notkun og tíðum þvotti, og tími til kominn að fara að svipast um eftir nýjum. Vandamálið er að það er erfitt að nálgast slíka boli hér á landi (nema hugsanlega það al-vinsælasta - Maiden, Metallica, Cannibal Corpse og þess háttar, sem ég hef engan áhuga á). Getið þið Hugarar mögulega bent mér á einhverja síðu þar sem er hægt að panta svona boli á sæmilegu verði? Helst einhverja með gott úrval, bögg að þurfa að panta frá mörgum stöðum upp á sendingarkostnað og fleira þið skiljið. Sveitirnar sem ég er helst að leita að bolum með eru Nightwish, Kamelot og Moonspell ef það hjálpar.
Peace through love, understanding and superior firepower.