Annað hvort er þetta asnalegasti brandari sem ég hef séð, eða það eru til brjálaðir múslimar sem eyða tímanum sínum í þetta. Ég var að kíkja inn á www.diehardmetalshop.dk rétt áðan eins og ég á til að gera inn á milli og þetta er það sem ég sé á skjánum.

PROTESTATION

Hak Din islam, islam'a Karsi Olanlara Karsi savasimiz surecektir
Our war will continue against the ones who are against the real religion Islam
HaCKeD
OTTOMAN GRANDCHILD
aLpTurkTegin TURKISH Defacer

Ég ætla rétt að vona að þetta sé eitthvað grín, ef ekki þá langar mig að vita hvað í anskotanum Metalhausar hafa gert á móti Múslimum. Ég veit um of margar hljómsveitir til að nefna sem nota arabíska tónlist sem áhrifavalda þegar þeir eru að semja. Ég er ekki flygjandi öfgakenndum trúarbrögðum á neinn hátt, reyndar er ég harðlega á móti þeim í hvaða formi sem er. En út úr öllum öfgakenndum trúum sem ég hef kynnt mér í gegnum tíðina skil ég Múslimskar öfgar kannski best. Ég hef ekkert á móti Islam, mér finnst þetta reyndar fín trú ef maður tekur hana ekki til öfga, og ég ætla að vona að margir séu sammála mér hvað það varðar. Þannig mín spurning er af hveju í annskotanum þarf að vera að ráðast á samfélag metalsins svona?