Ég er tiltölulega nýlega farinn að fíla In Flames almennilega - Þá mest diskana Whoracle, Colony og Clayman, sem og einstaka lög af hinum diskunum þeirra (ég hef hlustað minna á fyrri diskana en flest hitt og er ekki búinn að ná almennilega). Þá fór ég að spá, ætli séu ekki til einhver fleiri góð bönd í svipuðum stíl? Ég myndi venjulega hreinlega nota Pandora.com, en henni var lokað á Íslandi fyrir mörgum mánuðum en mjög nýlega hér í Bretlandi líka (núna einungis aðgengileg í USA sökum höfundaréttarlaga :( ), svo það er ekki hægt. Þá sný ég mér til ykkar hugara, getið þér bent mér á einhver góð bönd sem spila svipaða tónlist og In Flames?
Peace through love, understanding and superior firepower.