Inná þessu áhugamáli er greinilega augljóst að black og death metall eru vinsælustu metal stefnurnar og er mest verið að tala um þau. En ég vil bara fá að vita hvort það sé það eina sem fólkið hérna hlustar á?

Er enginn hérna sem hlustar á t.d. nu-metal, metalcore, thrash metal, industrial metal eða prog metal eða eitthvað meira?

Ég hlusta á allt af þessu, death metal, black metal, nu-metal, metalcore, thrash metal, industrial metal og prog metal en ég vil fá að vita hvað ykkur finnst.