http://www.mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1268216

Dimmu Borgir vilja halda tónleika í Dimmuborgum

Norska dauðarokksveitin Dimmu Borgir nýtur töluverðra vinsælda og virðingar meðal áhugamanna um þessa tegund tónlistar og nýjasta plata sveitarinnar, In Sorte Diaboli, hefur fengið góða dóma gagnrýnenda og rokselst nú beggja vegna Atlantshafsins. Í viðtali við tónlistarvefinn Blabbermouth.com segir einn í hljómsveitinni, að hún vilji gjarnan koma til Íslands enda sé nafnið á sveitinni ættað þaðan.

Bassaleikarinn Vortex er spurður að því hvort sveitinni langi til að spila á einhverjum stað sem hún hafi ekki komið til. „Já, á Íslandi,“ svarar hann. „Þaðan er nafnið Dimmu Borgir upprunnið, frá hraunmyndunum þar sem þjóðsögur segja, að einn af inngöngunum til vítis sé. Það væri gaman að halda tónleika þar.”

Svo ég spyr: Mundu menn ekki mæta í Dimmuborgir á Dimmuborgir?
Arsenal Forever!