tekið af heimasíðu www.xid977.is
02. febrúar 2007 11:02
PÚLSINN 2. FEBRÚAR

Ein svakalegasta dauðarokksveit allra tíma, Cannibal Corpse frá bandaríkjunum, er á leið til Íslands til að halda tvenna tónleika í sumar. Sveitin mun halda tvenna tónleika á NASA í Reykjavík 30. júní og 1. júlí, þar sem seinni tónleikarnir verða fyrir alla aldurshópa! Cannibal Corpse, sem hefur gefið út 10 hljóðversplötur og sent frá sér heilan helling af öðrum útgáfum á sínum ferli, er söluhæsta dauðarokkshljómsveit allra tíma. Sveitin er fyrsta dauðarokkssveit sögunnar til að hljóta platínusölu í heiminum og fyrsta sveitin til að koma dauðarokksplötu á vinsældarlista Billboard Magazine í Bandaríkjunum.


Gaman… :)