Dimebag Darrell drepinn 8. des 2004 Eins og flestir sem eitthvað vit hafa á þungarokki vita að fyrrverandi gítarleikari groove metal sveitarinnar Pantera, Dimebag Darrell, var skotinn til bana 8. desember 2004 af brjálæðingnum Nathan Gale á tónleikum nýju hljómsveitar hans, Damageplan. Næsta föstudag verða liðin 2 ár síðan það gerðist, og ég legg til að við minnumst hans með því að leigja út Grafarvogskirkju, hengja upp risastórt Dimebag plakat yfir þetta brjálaða listaverk þeirra, fáum smá bjór og neglum Pantera tónlist í botn fram eftir nóttu. Hann myndi kunna að meta það.