Symphony X / DT aðdáendur sperrið eyrun fyrir: Cloudscape Frá Helsingborg í Svíþjóð kemur þessi hljómsveit. Stofnuð 2001 hefur sveitin á einhvern undraverðan máta farið framhjá mér að mestu eða ég einhvern veginn aldrei látið af því að tékka á henni umfram 1-2 lög sem ekki hafa gripið mig fyrir einhverju x árum. Ég var s.s. að bæta úr þessu í kvöld og nýjasta platan frá þessari sveit er bara alveg drullu impressive.

Söngvarinn, Micael Andersson, er greinilega perla sem ekki hefur fengið að skína nógu vel í progheiminum, en hér er á ferðinni alveg þrusu söngvari. Hann minnir mig svolítið á samblöndu af Russel Allen úr Symphony X Jörn Lande hinum norska og Nils Patrik Johansson hinum sænska (úr Astral Doors og Wuthering Hights). Tónlistin er nokkuð hefðbundin melódískur progmetall og maður heyrir áhrif frá Dream Theater, Symphony X og fleirum. S.s. fátt nýtt hér undir sólinni, en þrátt fyrir það alveg frábær tónlist.

Sveitin hefur gefið út þrjár plötur, sú nýjasta heitir Global Drama og kom út 2008. Það er sú plata sem ég hef verið að tékka á núna.

Tékkið á þessum myndböndum

CLOUDSCAPE - Cloak & Daggers
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=DfmAyRWqyHY

Cloudscape - Mind Diary Frábært lag alveg hér á ferð!
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=1dTIM3OqLdQ

CLOUDSCAPE - Darkest Legacy
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=v0Imp4Ednt0
Resting Mind concerts