Wacken Open Air 2010 - Hópferð á Mekka Metalsins Wacken Open Air er ein elsta og þekktasta þungarokkshátíð Þýskalands, sem dregur að sér á hverju ári mörg þúsund manns frá öllum heimshornum. Hátíðin, sem haldin er í smábænum Wacken í Norður-Þýskalandi, er þriggja daga löng hátíð og fer fram dagana 5. - 7. ágúst 2010. Spilað er á sex sviðum, þar af 4 aðalsvið og tvö minni.

Wacken er stórglæsileg hátíð, þar sem aðbúnaður, aðstaða, öryggi og almenn framkvæmd og utanumhald er til fyrirmyndar. Það kom því ekki á óvart að hátíðin hlaut Live Entertainment Awards verðlaunin í flokknum Festival of the Year í Þýskalandi 2008. Slíkt er sérlega eftirtektarvert í ljósi þess að um 500 tónlistarhátíðir eru haldnar í Þýskalandi á ári hverju.

Hópferð á Wacken - Mekka Metalsins í meira en 20 ár!
RestingMind Concerts hefur haldið utan um hópferð Íslendinga á þessa hátíð síðustu sex árin. Árið 2004 nýttu 25 metalhausar sér þessa ferð, 2005 var hópurinn kominn upp í 40 manneskjur, 2006 náði hópurinn 50 manna markinu, 2007 fóru 60 manns með og 2008 fóru 80 metalhungraðar sálir með í ferðina.

RestingMind ætlar að endurtaka leikinn í sumar, enda hafa náðst samningar við veðurguðina um alveg einstakt veður í ágúst - Alveg satt! Um er að ræða hópferð með rútum frá Kaupmannahöfn og beint á Wacken svæðið. Þátttakendur sjá sjálfir um að koma sér til Danmerkur.

Hátíð með um 80 hljómsveitum
Eftirtaldar hljómsveitir eru staðfestar fyrir festivalið núna í ár enn sem komið er, en ballið er bara rétt að byrja, því það verða um 80 sveitir á Wacken og síðustu sveitirnar verða líklega ekki staðfestar fyrr en nokkrum mánuðum fyrir festivalið eins og gengur og gerist með svona festivöl.

ARCH ENEMY - Sænsku melodeath meistararnir með Angelu Gossow í öskrunum.
CORVUS CORAX - Epískt folk metal frá Þýskalandi. Setja alltaf risa-show á laggirnar á Wacken.
DIE APOKALYPTISCHEN REITER - Þýskt band með þýskum textum. Power metall með epískum áhrifum.
EDGUY - Eitt fremsta power metal band Þýskalands.
IMMORTAL - Meistarar norska blackmetalsins. Þarf að segja meira?
STRATOVARIUS - Stærsta power metal band Finnlands með 12 studio plötur á bakvið sig.
THE DEVIL'S BLOOD - Satanískir ritualar og psycadelic rokk-metall.
U.D.O. - Gamli jálkurinn úr Accept, Udo Dirkschneider, hér á ferðinni með hljómsveit sína á bakvið sig.

Aldeilis fínt line-up sem dekkar svo til allar tegundir þungarokksins. Ballið er þó rétt að byrja!

Betrumbætt tónleikasvæði og hámarksfjölda tónleikagesta náð
Fyrir hátina 2007 var tónleikasvæðið stórlega betrumbætt þegar aðalsviðin þrjú voru aðgreind betur og þriðja stærsta sviðið, hið svokallaða Party Stage, var flutt á sérsvæði, hinu megin við aðalsviðin tvö. 2008 var þetta skipulag allt bætt enn til muna og svæðið opnað betur og inngöngum á tónleikasvæðið fjölgað og sett á fleiri staði. Einnig datt tónleikahöldurum það snjallræði í hug að bæta við einum risaskjá með sínu eigin hljóðkerfi fyrir utan tónleikasvæðið, þannig að þreyttir metalhausar gátu plantað sér þar, jafnvel með stólana sína, og tékkað á böndum sem þeir kusu ekki að fara í troðninginn fyrir framan sviðin. Eftir 2007 hátíðina hafa líka verið gerðar margar ráðstafanir til að minnka og koma í veg fyrir troðning sem hefur tekist mjög vel. Frábær þróun.

Ferðatilhögun
Lagt er af stað frá Köben að morgni þriðjudagsins 3. ágúst!! Þetta var líka gert 2008 og '09 en fyrir það höfðum við lagt af stað á miðvikudeginum. Bæði 2006 og 2007 mynduðust langar biðraðir á þjóðvegunum að Wacken og menn þurftu að bíða í rútum í langan tíma af þeim sökum (sem er svosem ekkert slæmt með kaldar veigar við hönd og metal í græjunum). Formlega opnar Wacken tjaldsvæðið ekki fyrr en á miðvikudeginum, en í fyrra byrjuðu þeir að bjóða fólki að koma á mánudegi og þriðjudeginum gegn auka gjaldi, sem við sleppum við að borga.

Þetta þýðir auðvitað að fólk verður að vera komið til Köben á mánudeginum í síðasta lagi! Brottför frá Wacken er á sunnudeginum, 8. ágúst og áætlaður komutími í Köben er um 20-21 leytið.

Wacken Metal Battle Iceland - Íslenskt band á Wacken 2010
Í annað skipti verður haldin Wacken Metal Battle keppni á Íslandi. Þessi keppni er live hljómsveitakeppni, þar sem sigurhljómsveitin fær réttinn til að spila á Wacken og taka þar með þátt í lokakeppni Metal Battle. 26 þjóðir munu taka þátt í Metal Battle í ár, en sigurvegar lokakeppninnar munu hljóta m.a. hljómplötusamning, trommusett, magnara og annað að launum. Var það hljómsveitin Beneath sem vann íslensku undankeppnina 2009. Frekari upplýsingar um keppnina er að finna á http://www.metal-battle.com

Verðið
Boðið er uppá einn sameiginlegan pakka fyrir bæði rútuna til Wacken og miðann inná festivalið. Fyrir þá sem þegar hafa tryggt sér miða á festivalið býðst mönnum að panta bara pláss í rútunni. Rútuferðin í Danmörku er skipulögð af Livescenen, og stendur einnig Dönum til boða, þannig að það verða eldhressir Danir með í rútunum til og frá Wacken. Athugið að flugið til Kaupmannahöfn er fyrir utan þennan pakka og á ábyrgð hvers og eins fyrir sig, enda flugframboð þangað mikið og ódýrt fyrir og mismunandi hvað fólk vill vera lengi í Köben fyrir/eftir festivalið.

Innifalið í pakkanum er þetta:
* Miði á Wacken hátíðina (augljóslega ekki fyrir þá sem panta bara rútuferðina).
* Rútuferð frá Köben beint á Wacken svæðið og til baka.
* Grillveisla á þriðjudeginum í tjaldbúðum Íslendinga (fólk kemur með sinn eigin mat á grillið, hægt að kaupa á leiðinni í rútuferðinni þegar stoppað er á landamærum Danmerkur og Þýskalands).
* Partýtjald (áður voru nokkrir sem lögðu í púkk til að kaupa slíkt tjald, en núna verður þetta innifalið). Síðustu ár hefur verið fjárfest í risa 3 x 9 metra tjöldum sem komu mjög vel að notum. Verður slíkt gert aftur, en þessi tjöld eru himnasending ef það rignir eða sólín skín af of miklum krafti.
* Full Metal Service sem samanstendur m.a. af eftirfarandi:
- Tjaldsvæði og kostnaður vegna rusls.
- Aðgangur að sundsvæði Wacken. Skutla ferjar fólk að Schenefeld sundlauginni.
- Engin takmörkun á þeim mat og drykk sem fólk hefur með sér á tjaldsvæðið.
- Eingöngu græn svæði fyrir tjaldsvæðin.
- Wacken festival límmiði.
- Full Metal Bag, bakpoki sem verður fullur af goodies…
- Geisladiskur (takmarkað upplag)

Verðið sem þetta kostar allt saman er 1970 danskar krónur (DKK). Þetta er sama verð og í fyrra!

Fyrir þá sem hafa tryggt sér miða, er einnig hægt að panta bara pláss í rútunni og verðið fyrir þann pakka er 1040 DKK!

Nánari upplýsingar og skráning
Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Þorsteini Kolbeinssyni.
MSN: restingmind “at” msn.com
Email: thorsteinnk “at” hive.is (nota það frekar en msn meilinn)
Sími: 557-5599 og 823-4830

Ef menn vilja skrá sig, þá senda menn email á mig með eftirfarandi upplýsingum:

Nafn
Heimilisfang, póstnr og staður
Kennitala
Heimasími og GSM
Email og
MSN login (ef annað en email).

Og ég svara um hæl með upplýsingum um hvernig er hægt að borga en einungis er hægt að greiða fyrir ferðina í ár með kreditkorti.

Þorsteinn
Resting Mind concerts